157. löggjafarþing — 37. fundur,  24. nóv. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.

265. mál
[17:42]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hæstv. ráðherra kemur inn á margt annað sem ég tel vera afar mikilvægt. Hæstv. ráðherra talar um nýsköpun. Það væri hægt að halda áfram með sjávarföllin og aðra tækni, sólarorku. Það eru mörg tækifæri til að efla umgjörð um fjölbreytileikann sem raforkukerfið okkar þarf á að halda. Ég held líka að það verði mikilvægt að fylgjast vel með og passa upp á að útfærslur séu góðar þegar kemur að þeim áætlunum sem eru í bígerð varðandi smávirkjanir, því að smávirkjanir eru mjög ólíkar að stærð og það þarf að huga að innviðum á ákveðnum stöðum þar líka.

Ég vil að lokum kannski kalla eftir því að betur verði náð utan um það mál sem ég finn að hvílir hvað mest á fólki um allt land sem býr fyrir utan þéttbýliskjarna, þ.e. flutnings- og dreifikostnaður. Hann hefur hækkað mikið og ég held að það sé svið sem mun skipta verulegu miklu máli, bæði fyrir almenning og öfluga iðnaðarstarfsemi. Hæstv. ráðherra getur treyst á gott samstarf til að ná árangri á því sviði.