157. löggjafarþing — 37. fundur,  24. nóv. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.

265. mál
[17:44]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsögu í þessu máli. Hér er um að ræða mál sem hefur göfug markmið og ég styð heils hugar, að auka skilvirkni og einföldun. Þess vegna er rétt að staldra við ýmsa efnisþætti í þessu máli og ég tel að það sé ýmislegt sem þurfi að skoða nánar, sérstaklega gagnvart stærri atvinnugreinaflokkunum sem frumvarpið snertir. Þá staldra ég við 7. gr. frumvarpsins sem segir að mögulegt sé með reglugerð að opna á að það sé hægt að skrá kítósan-verksmiðju, að það sé hægt að skrá olíubirgðastöð og að það sé hægt að skrá steinullarverksmiðju og að það sé ekkert svona starfsleyfi heldur sé hægt að opna á þetta, ef ég skil rétt. Það kemur þarna fram að ráðherra geti veitt heimild til að kveða á með reglugerð að atvinnurekstur samkvæmt viðauka II við lög um hollustuhætti verði háður skráningarskyldu og þar eru þessi fyrirtæki sem ég taldi upp: fiskimjölsverksmiðjur, urðunarstaðir og fleiri þættir. Ég held að þetta sé eitthvað sem umhverfis- og skipulagsnefnd þingsins ætti að staldra við, hvort þetta sé ekki heldur of rúmt.

Það eru aðrir þættir sem er einnig rétt að skoða af því að menn vilja hraða málsmeðferð og auka skilvirkni í leyfisferlum þegar þetta er komið í gegnum ákveðna gátt. Það var sett reglugerð 830/2020 um skráningarskyldu, gott ef hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson hafi ekki einmitt sett þá reglugerð og gott ef hann situr ekki hér inni. Þrátt fyrir að hugmyndin hafi verið góð þá náðu þau markmið því miður ekki fram að ganga, m.a. vegna þess að sá hugbúnaður sem var gerður og átti að greiða leið til leyfisveitingar stóð á sér þannig að ef einhver ætlaði að skrá hárgreiðslustofu á Blönduósi og var búinn að þræða sig í gegnum alla skráninguna á island.is þá var fólk bara dottið út úr kerfinu þegar ljúka átti skráningunni. Þessi vélbúnaður var ekki klár og mér skilst að hann sé ekki enn þá klár. Menn mega því ekki fara fram úr sér þótt vissulega séu markmið frumvarpsins góð.

Enn fremur má nefna að ákveðinn misskilningur er uppi, þ.e. að í leyfisveitingarferlinum, alla vega hvað minni háttar starfsemi snertir, sé fólk í raun þrætt í gegnum einhver svipugöng. Nú er það þannig að ég hef verið framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlits um árabil og iðulega felst starfið miklu frekar í leiðbeiningum. Það er verið að leiðbeina fólki í gegnum þau skilyrði sem þarf að uppfylla. Að setja dæmið upp eins og að það verði bara allt í einu einfaldara að fara inn á einhverja heimasíðu kann að vera misvísandi. Meira að segja vil ég segja að þeir sem ekki eru tölvuvanir og voru komnir það langt í þessu að fara í gegnum skráningarskylduna sendu tölvupóst og óskuðu eftir því að komast aftur í starfsleyfin.

Hvað sem því öllu líður er alveg ljóst að mér finnst hér vel í lagt. Ég óskaði eftir því að umhverfis- og samgöngunefnd skoðaði hvort þessi 7. gr. frumvarpsins gangi ekki heldur of langt, þ.e. að menn geti farið í gegnum miðlægan vef á island.is og skráð fiskeldisstöð, skráð kítósan-verksmiðju og svo bara gengur það fyrir sig án þess að það sé að einhverju leyti kynnt fyrir næstu nágrönnum eða fari í gegnum einhvern feril.

Að því sögðu líst mér ágætlega á 6. gr. frumvarpsins þannig að það sé þá heimilt að stytta fresti og gera kerfið hraðvirkara. Eins finnst mér sem íbúa úti á landi að það að stefna öllu inn í miðlæga stofnun þar sem öll skilyrði eru eins sé jafnvel of langt gengið. Vegna þess að ef við tökum t.d. fráveitukerfi frá kítósan-verksmiðjum, eins og finna má á Siglufirði, þá þyrfti hún alveg örugglega að vera með strangari hreinsibúnað en ef hún væri á Siglufirði vegna þess að kröfur fara augljóslega eftir umhverfi og þeim aðstæðum sem atvinnureksturinn er í. Þannig að ég held að það sé rétt að staldra við og skoða þessa hluti, sérstaklega 7. gr.

Að lokum vil ég lýsa yfir ánægju og stuðningi við markmið frumvarpsins um að láta hlutina ganga hratt fyrir sig, vera ekki að búa til óþarfa þröskulda, ná fram markmiðum sem tryggja hæstu umhverfisgæði og að það gangi hratt og vel fyrir sig þannig að fyrirtæki valdi hvorki ónæði né mengun; að þessi einföldun sem er boðuð nái fram að ganga í sátt við umhverfið og næsta nágrenni.