157. löggjafarþing — 37. fundur,  24. nóv. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.

265. mál
[17:54]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég fagna því að hæstv. ráðherra hafi tekið þessum ábendingum vel en ef maður fer yfir það sem verður mögulega heimilt að sé undanþegið starfsleyfisskyldu þá eru þetta þannig fyrirtæki að ég er ekki endilega viss um að það sé hægt að finna rök fyrir því að mikil þörf sé á þessu, hvorki er varðar fiskimjölsverksmiðjur né annað. Vissulega sá ég þarna eina smugu á mögulegu bleikjueldi til sveita eða lítils háttar fiskeldi. Að öðrum kosti held ég að þessi reglugerðarheimild sé óþörf. Við megum ekki heldur gleyma því að þegar hingað koma erlendir aðilar og kaupendur og við förum yfir fyrirtækin er oft spurt um leyfin og hvernig eftirliti er háttað. T.d. gengst Landsvirkjun undir umhverfisúttekt. Það er ekki gott ef stór fyrirtæki, eins og t.d. fiskimjölsverksmiðjur, segi bara: Ja, ég skráði fyrirtækið. Alla jafna er óskað eftir góðum vottunum og góðum umbúnaði opinberra aðila þannig að það sé trúverðugleiki. Vissulega sé ég þarna að ákvæðið ætti vel við ef um lítið landeldi væri að ræða, t.d. bleikjueldi. Þá sér auðvitað hver maður það í hendi sér að engin þörf er á því að fara í mikinn umbúnað um starfsleyfisferil og skilyrði heldur ætti það að liggja ljóst fyrir. Slíkt getur því átt við um þennan fyrirtækjaflokk.