157. löggjafarþing — 37. fundur,  24. nóv. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.

265. mál
[17:57]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Það má vissulega færa rök fyrir því sem hæstv. ráðherra nefndi, að þetta verður auðvitað ekkert í lausaleik. Það verður að gilda ákveðin umgjörð um starfsemina en það er einn tilgangur með auglýsingunni sem er ágætt að hafa í huga. Hann er ekki endilega að leiða eitthvað nýtt fram í starfsleyfisskilyrðum heldur að gefa nágrönnum og þeim sem telja sig málið varða kost á að koma á framfæri athugasemdum. Það getur átt við t.d. ef viðkomandi fyrirtæki er í blandaðri byggð eða ef fyrirtæki sem falla þarna undir starfa á sviði matvæla, þá geta komið fram athugasemdir er varða t.d. hávaða, reyk eða lykt frá framleiðslu. Við tökum bara eitthvert raunhæft dæmi, t.d. af sútunarverksmiðju, að þá geti menn komið sínum athugasemdum og sjónarmiðum á framfæri. Ég held því að það sé allt í lagi að staldra við þennan lista og jafnvel að endurskoða hlutina og færa þá mögulega fiskeldi og minna eldi úr þessum flokki í stað þess að vera að opna á skráningu fyrirtækja sem eru verulega stór og geta því eðlilega haft talsverð áhrif á umhverfi sitt.