157. löggjafarþing — 37. fundur,  24. nóv. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.

265. mál
[17:59]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna en ég skil ekki af hverju hv. þingmaður er að skammast í núverandi hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Hv. þingmaður á bara að skammast í þeim sem hér stendur eins og hann gerði á síðasta kjörtímabili. Hann var að vísu miklu frískari í orðalagi og talaði miklu skýrar þá. Þetta er sykurhúðaðra núna. Það var miklu betra á síðasta kjörtímabili þegar hv. þingmaður úthúðaði þeim sem hér stendur fyrir skráningarreglugerðina og fór ekki leynt með að honum fannst þetta fáránlegt mál í alla staði. Bara fyrir þá sem eru að fylgjast með gengur þetta út á það að einfalda gamla lagið. Það er það sem við vorum að gera. Við vorum komin með um 60 atvinnugreinar, að ég held, og sem betur fer hefur núverandi hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra haldið þessu áfram. Að vísu mætti hann nú alveg geta heimilda, ég tala nú ekki um þegar koma inn mál eins og varðandi einhvern veitingastað og sá sem hér stendur er skammaður fyrir að hafa sett eitthvað inn í reglugerð sem kom inn í lög fjórum árum áður en ég varð ráðherra. Látum það þó liggja á milli hluta. Samfylkingin er bara eins og hún er.

Það sem ég segi við hv. þingmann: Það er ekki þannig að þessi starfsemi sem hann tilgreindi hérna, og hann að vísu nefndi það sjálfur, komi að himnum ofan. Það er ekki eins og hún fari ekki í gegnum ferli áður en að starfsemi kemur. Menn vakna ekkert einn daginn og bara: Heyrðu, það er komin sútunarverksmiðja í hverfið mitt. Þetta er ekki þannig. Þetta fer í gegnum mikið ferli áður en slíkt er leyft. Ferlið og breytingarnar sem ég hóf á því 2022 og er enn verið að vinna að gengur út á það að í stað þess að fyrirtæki þurfi að sækja um til mismunandi eftirlits, þ.e. heilbrigðiseftirlits og bíða í fjórar til sex vikur (Forseti hringir.) að því gefnu að þau uppfylli skilyrðin, geti hafið starfsemi og svo verði hafið eftirlit með þeim. Það er bara áhugavert (Forseti hringir.) og ég þakka hv. þingmanni fyrir hreinskilnina, að hann er hér að rifja það upp að hv. þm. og Flokkur fólksins (Forseti hringir.) er á móti þessu og það er mikilvægt að atvinnulífið viti af þessu.

(Forseti (EÁs): Forseti minnir hv. þingmenn á að ræðutími er tvær mínútur.)