157. löggjafarþing — 37. fundur,  24. nóv. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.

265. mál
[18:02]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Já, ég er víst orðinn alveg sykurhúðaður þegar ég ræði við hæstv. ráðherra. Það er víst annar bragur á því og gott að heyra að honum finnist sem mér hafi farið fram. (GÞÞ: Nei...) Ég tek þessu bara sem hóli og allt það. Fyrir þá hins vegar, sem t.d. voru að framfylgja þessari skráningarreglugerð og sátu uppi með hana, hvort sem það voru björgunarsveitir eða hárgreiðslustofur og allt það, þá var það ekkert voðalega einfalt og nánast eins og að verið væri að leggja fyrir fólk einhverja þraut, að komast í gegnum þetta. Hverju skilaði þetta? Skilaði þetta einhverju? Ég held ekki, nema þá því að fólk var í uppnámi að komast í gegnum þetta. Það sem eiginlega var skrýtnast við þessa skráningarreglugerð var að hún leit vel út og menn kynntu þetta eins og um mikla framför væri að ræða en hún skilaði nú eiginlega ekki öðru en að fólk skráði sig inn á island.is, síðan var prentað út pdf-skjal þar undir Umhverfisstofnun og það síðan sent til viðkomandi heilbrigðiseftirlits sem átti þá að fylgja þessari skráningu eftir. Þetta var því bara eitthvað sem gekk ekki vel.

Frú forseti. Þetta gekk ekki vel og það eru góðar fréttir sem komu hér fram hjá hæstv. umhverfisráðherra að það hafi orðið framför, þetta sé farið að ganga sjálfkrafa í gegn. Það er nýlunda ef svo er því ekki er alltaf einfaldara að fara í gegnum tölvuna, sérstaklega ekki fyrir eldra fólk sem lendir í því að fara í gegnum island.is (Forseti hringir.) og hefur þurft frá að hverfa af því að það er búið að þræða sig í gegnum þessa þessar krókaleiðir. (Forseti hringir.) Þá hefur það fallið á tíma og þurft að byrja upp á nýtt.