breyting á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður, sykurhúðaði Sigurjón Þórðarson, er nú að koma aðeins meira að kjarna málsins, að hann er bara ekki hrifinn af þessari leið. Það er nú þannig að ef tölvukerfið er ekki nógu gott er það bara lagað. Mér finnst hins vegar bara koma betur og betur í ljós, og það var miklu skýrara hjá hv. þingmanni hérna á fyrra kjörtímabili, að hann vill hafa gamla fyrirkomulagið. Hvernig var gamla fyrirkomulagið? Það var þannig, ef við segjum að hv. þingmaður væri í atvinnurekstri, sama atvinnurekstri, að Ísland er ekkert rosalega fjölmennt en það var samt sem áður þannig að fólk gat lent í því að þurfa að uppfylla mismunandi reglur eftir því hvar það væri á landinu og þurfa að bíða jafnvel í fjórar til sex vikur með mjög mikilli fyrirhöfn í kringum eftirlitið. Ég fékk margar kvartanir undan því en engar af þessu sem hv. þingmaður er hér að vísa til, enda held ég að við séum þó allavega sammála um það, þótt ég sé ekki maður til að búa til forrit eða annað slíkt, að ef þetta er ekki að virka mjög vel þá er ekkert annað að gera en að laga það.
Ég hef áhyggjur af því ef hv. þingmaður, sem er í hv. nefnd sem fer með þetta mál, umhverfis- og samgöngunefnd, ætlar að fara að kukla í þessum þætti málsins, og ég styð hæstv. ráðherra í því að … (Gripið fram í: Hann er ekki í nefndinni. )— Ekki ráðherrann, en það hlýtur einhver úr Flokki fólksins að vera í nefndinni ef hv. þm. Sigurjón Þórðarson er ekki þar. Ég hef bara áhyggjur af því að hv. þingmaður boði það að stíga skref til baka þegar kemur að einfölduninni. Það gæti ekki verið skýrara þótt hv. þingmaður sé lítillátari í yfirlýsingum en á síðasta kjörtímabili þegar hann gagnrýndi þann sem hér stendur fyrir að fara í þetta. Ég hef áhyggjur af því og er (Forseti hringir.) alls ekki sammála hv. þingmanni hvað það varðar.