157. löggjafarþing — 37. fundur,  24. nóv. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.

265. mál
[18:06]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Það kemur kannski ekki á óvart að hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson er mikill talsmaður miðstýringar og vill bara að allir lúti sömu reglum og að menn gangi í takt hvar sem er á landinu og að það séu bara nákvæmlega sömu reglur, hvort sem það er til sveita eða annars staðar. Við getum tekið dæmi af því að einhver hefði t.d. hug á að setja upp reykhús á landi sínu í Eyjafirði og eigi þá að lúta sömu reglum og lögmálum og reykhús á Blönduósi, inni í íbúabyggð. Auðvitað er það rétt að hvort sem það á við um starfsemi eða túlkun á reglum lúti þær að því umhverfi sem starfsemin er í. Þetta á sérstaklega við um fráveitumál og það er undarlegt þegar talsmenn, eða þeir sem segjast a.m.k. vera talsmenn frelsis og athafna, skilji þetta ekki og vilji bara stefna öllu í sama mótið. Þessi miðstýringarárátta sem kemur hér fram í viðhorfum hv. þingmanns kemur kannski ekki á óvart, þ.e. að öll starfsemi, hvar sem hún er á landinu, eigi að lúta nákvæmlega sömu lögmálum. Það er kannski ekkert vit í því heldur er það auðvitað þannig að umhverfið hefur áhrif. Tökum t.d. losun og fráveitu sem dæmi, hvað hún hefur mikil áhrif á umhverfið. Ef hún er í miklu þéttbýli er auðvitað ekki mikil þörf á því að hreinsa lífrænt magn úr fráveituvatni, sem væri þó full þörf á, t.d. hér á höfuðborgarsvæðinu. Þetta andsvar hjá hv. þingmanni er með þeim hætti (Forseti hringir.) að hann ætti aðeins að skoða þessa hluti (Forseti hringir.) og vita hvort það sé ekki hægt að finna einhvern milliveg frá þessari miðstýringaráráttu Sjálfstæðisflokksins.