157. löggjafarþing — 37. fundur,  24. nóv. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.

265. mál
[18:09]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Það er ekki hægt annað en að halda áfram þar sem frá var horfið og eiga orðaskipti við hv. þm. Sigurjón Þórðarson sem var bara mjög hreinskilinn og lýsti stefnu hluta stjórnarinnar — þau eru búin að halda nokkra blaðamannafundi til að segja hvað þau séu öll frábær og samrýmd, eða samhent kölluðu þau það víst. Það hljóta því allir að vera sömu skoðunar og hv. þingmaður, það getur ekki annað verið. (Gripið fram í: Björt og brosandi. ) Björt og brosandi.

(Forseti (EÁs): Ekki samtöl úti í sal.)

Ég biðst velvirðingar á að hafa tekið þátt í þessu samtali. En þessi samhenta ríkisstjórn hlýtur að vera sömu skoðunar og hv. þm. Sigurjón Þórðarson. Það getur ekki annað verið. Hann bara útskýrði það fyrir okkur að það væri gjörsamlega fáránlegt að það væru sömu lög og reglur fyrir alla Íslendinga, algjörlega fáránlegt. Þvílík miðstýringarárátta. Hér vill hv. þingmaður frelsi mismunandi eftirlitsaðila til að vera með alls konar skoðanir á því hvernig viðkomandi atvinnurekstur eigi að haga sér á hverjum tíma og á hverjum stað, og kallar það miðstýringu þegar við erum að tala um sömu reglur fyrir alla.

Virðulegur forseti. Ég verð að valda hv. þingmanni miklum vonbrigðum en hann er hér á Alþingi Íslendinga og við erum hér alla daga að setja lög sem eiga við alla. Þetta er auðvitað hræðilegt. Já, hv. þingmaður segir já. Auðvitað þurfum við að gera eitthvað í þessu. Það verður að hafa lög þannig að eftirlitsaðilar, mismunandi eftirlitsaðilar, geti túlkað þau alveg eins og þeir vilja. Það væri nú frelsið. Ég held að hv. þingmaður standi fyrir frelsi eftirlitsaðila. Maður sér þetta og þetta er það sem maður þarf að eiga við þegar maður er að vinna við einföldun en ég er bara ánægður með það hve hv. þingmaður er hreinskilinn þegar hann berst hér fyrir frelsi eftirlitsaðila til að hafa eftirlitið nákvæmlega eins og þeim dettur í hug á hverjum tíma og túlka það eins og þeir vilja. Bara svo að menn átti sig á alvöru máls, af því að ég var mjög ánægður þegar hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og hæstv. atvinnuvegaráðherra kynntu mál sem var búið að vera í vinnslu og var í fullum gangi, búið að vera í tvö ár, byggt á hugmyndum frá fyrrverandi bæjarstjóra Kópavogs, Ármanni Kr. Ólafssyni — hæstv. ráðherrar gleymdu að vísu alveg að minnast á það einu orði, en látum það liggja á milli hluta. En þau töldu þetta vera mestu einföldun og mestu byltingu í einföldun sem sést hefði á Íslandi. Má vera og ekkert að þakka ef svo er. En þá kom þessi andstaða fram og við fundum hana alveg. Þegar við fórum af stað með þetta og héldum blaðamannafund, kynningarfund, komu einmitt eftirlitsaðilar og voru með þessa andstöðu sem hv. þingmaður kemur svo tært fram með hér, bara svo að menn átti sig á vandanum. Og það er ekki bara vandi fyrir atvinnuveitendur, af því að hv. þingmaður talar um reykofn. Segjum bara að hv. þingmaður myndi fara í þann atvinnurekstur, hætta að vera í eftirliti og fara í þann atvinnurekstur og ætlaði bara að setja upp tíu reykofna víðsvegar um landið. Hann gæti þá lent í því að það væru mismunandi reglur. Segjum að þeir séu allir í sveit, ekki í Eyjafjarðarsveit heldur bara allir í sveit, þá geta verið mismunandi reglur eftir hverju heilbrigðisumdæmi fyrir sig, fyrir utan allan tímann og fyrirhöfnina og kostnaðinn og allt sem þarf til að fara í gegnum þetta. Þetta á við um veitingastaði og ýmislegt annað. Einhver kynni að segja: Jú, þetta er svolítill kostnaður og fyrirhöfn fyrir vesalings fólkið sem stendur í þessu. En þetta er ekki bara það heldur er það þannig að matvælaeftirlitið okkar er undir smásjá út af nákvæmlega þessu. En hér kemur samhenta ríkisstjórnin — ég átta mig ekki alveg á því en mér finnst eins og hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra sé annarrar skoðunar, ég vona það. En það getur samt varla verið af því að þetta er svo samhent ríkisstjórn. En það kemur auðvitað í ljós.

Virðulegi forseti. Ég vek athygli á því að hér er hv. stjórnarþingmaður að segja það mjög skýrt að það eigi ekki að vera sömu lög og sömu reglur fyrir Íslendinga. Það er það sem hv. þingmaður er að segja. Þetta er einn helsti áhrifamaðurinn í ríkisstjórnarsamstarfinu. Hv. þm. Sigurjón Þórðarson hefur haft mjög mikið með bæði stjórnarstefnuna og stjórnarframkvæmdina að gera og hefur af ástæðu verið kallaður yfirráðherra út af framgöngu sinni í þinginu. Og hann er hér að boða það að hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hafi gengið of langt með þessu frumvarpi og að það eigi að skoða þetta í nefndinni. Það er það sem er að gerast og það veldur mér áhyggjum. Ég hef verið ánægður með að hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra sé að halda áfram með mál sem við vorum að vinna að og endurflytja það. Það er hins vegar rangt í greinargerðinni að vinna við einföldunina hafi verið hafin — sú dagsetning sem þar er nefnd. Það var gert í febrúar 2024. Það var gert frá fyrsta degi á öllum sviðum en kom m.a. fram í stækkunarfrumvarpinu sem var mál númer tvö sem undirritaður flutti. Og það var svo sannarlega unnið að hugmyndafræðinni, eins og hér kemur fram, um einn afgreiðslustað, svo maður sletti, með leyfi forseta: One Stop Shop. Ég er mjög ánægður með að þessari vinnu sé fram haldið og hún sé komin inn í þingið þó að ég hefði viljað sjá þetta mál, og þessi mál, koma fyrr inn því að okkur liggur á í þessu því að þetta reglugerðarfargan og þetta flækjustig er eitthvað sem nýtist engum. Ég hafna algjörlega sjónarmiðum hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar en ég er samt ánægður með það hve hreinskilinn hann er með þetta. Hér skulum við byggja upp land þar sem við erum ekki með sömu reglur og lög fyrir alla. Hv. þingmanni finnst það bara algjörlega fáránlegt. Hann talar um frelsi eftirlitsaðila og það er eitthvað sem ég er algjörlega á móti. En það ber hins vegar að þakka það þegar fólk kemur til dyranna eins og það er klætt. Það ber að þakka það þegar menn segja hlutina eins og þeim finnst þeir vera. Og þó svo að hv. þingmaður taki þessu sem hrósi, að ég sé að sykurhúða þetta — eftir því sem við ræðum þetta meira þá fer sykurhúðunin hraðar af þannig að þetta fer að verða meira eins og á síðasta kjörtímabili, en allt í góðu með það.

Ég geld varhuga við því að nefndin eigi að fara að kroppa í þetta með það að markmiði að fækka t.d. þeim sem geta nýtt sér skráningarreglugerðina. Ég geld varhuga við því. Eins og hv. þingmaður talar um þá myndi þeim fækka sem geta nýtt sér skráningarreglugerðina. Það var okkar markmið að fá sem flestar atvinnugreinar inn, nema þær sem augljóslega eru þess eðlis að þær eiga ekki heima þar, en þær eru ekki margar. Eins og hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra sagði í sínu andsvari þá er ekki eins og menn vakni upp einn daginn og allt í einu sé komin verksmiðja. Þetta fer í gegnum mikið ferli. Það sem menn eru hins vegar að kvarta yfir, og eðlilega, er að það þarf að fara í gegnum svipuð ferli aftur og aftur og aftur. Ef hv. þm. Sigurjón Þórðarson kemur aftur hingað upp væri áhugavert að vita hvort hann sé t.d. á móti hugmyndafræðinni sem við vorum að vinna að, og sem hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra er að vinna að, um einn afgreiðslustað. Það var það sem við lögðum upp með. Við fórum í sameiningu á þessum stofnunum til að einfalda þetta og gera það skilvirkara. Hv. þm. Sigurjón Þórðarson er kannski á móti því, vill kannski brjóta þær upp aftur. En sá sem hér stendur hefur unnið að því að sameina stofnanir, ekki bara þegar kemur að eftirliti, ekki bara eftirlitsaðila, heldur t.d. heilbrigðisstofnanir. Hv. þingmaður vill kannski að við brjótum þær aftur upp, fjölgum yfirmönnum. Það gæti verið eitthvað sem væri áhugavert að heyra hjá hv. þingmanni ef hann ætlar að koma hér og eiga orðaskipti við mig, sem ég vonast nú til að hann muni gera.

Þetta er mjög áhugavert, ég skal bara taka þetta allt saman, það er ekkert mál fyrir mig og gefa hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra frí og skjól. En ég vona nú að í þessari samhentu ríkisstjórn séu þetta ekki bara orð á blaði heldur sé ætlunin að fara með frumvarpið þannig í gegn að það muni einfalda en ekki, eins og hv. þm. Sigurjón Þórðarson kemur inn á, að kalla það miðstýringaráráttu að einfalda hlutina, eins og við fórum af stað með og hefur verið haldið áfram með núna, og hafa allar reglurnar eins. (Gripið fram í.)Hv. þingmaður kallar hér fram: Er það það sem ég vil? Já, virðulegi forseti.

(Forseti (EÁs): Ekki framíköll úr sal.)

Virðulegi forseti. Ég hef ekkert með stjórn fundarins að gera en það truflar mig ekki neitt að fá framíköll. (Gripið fram í: Þið eruð eins og gömul hjón.) Að vísu verð ég að viðurkenna að þetta framíkall var algerlega fyrir neðan allar hellur. Við værum þá frekar eins og ung hjón ef við værum eins og hjón, en látum það liggja milli hluta. En ég held að það sé algerlega ljóst um hvað deilan snýst. Hér kemur stjórnarliði og segir að það sé miðstýringarárátta að hafa sömu lög og reglur fyrir alla. Ég held að vísu að þetta sé ný stjórnmálakenning. Ég man ekki til þess að annar flokkur en Flokkur fólksins hafi komið fram með þessar hugmyndir, að það eigi ekki að vera sömu lög og reglur fyrir alla Íslendinga, í þessu tilfelli alla þá sem eru að stunda atvinnurekstur. Kvörtun hefur verið þessi, virðulegi forseti, af því að það er þó nokkuð um það að það séu fyrirtæki hér á landi sem eru á fleiri en einum stað á landinu. Forsvarsmenn þessara fyrirtækja hafa sagt: Hvernig má það vera að ég þurfi að fara eftir reglunum svona á Norðurlandi en allt öðruvísi á Suðurlandi? Hvernig má það vera? Þetta er Ísland. Þeir skilja það alveg að við erum með ein lög og eina reglu um eitthvað á Íslandi en aðrar reglur í Asíu, en hér er þetta mismunandi eftir landshlutum. Og hv. þingmaður talar bara mjög skýrt fyrir þessu og segir að þannig eigi þetta að vera. Hann kallar það miðstýringaráráttu sem ég beitti mér fyrir sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Og hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra er að halda áfram með það mál, þetta er eitt af þeim frumvörpum sem ég skildi eftir á borðinu hans, en það er líka allt í lagi. Hv. þm. Sigurjón Þórðarson talaði miklu skýrara við þann sem hér stendur á síðasta kjörtímabili en við eftirmann minn en gagnrýnin er hins vegar sú hin sama. Það sem veldur mér áhyggjum er að þessi samhenta ríkisstjórn ætlar, ef marka má orð hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar, að skoða það sérstaklega í nefnd að draga til baka það sem að þessu snýr í frumvarpinu. Það veldur mér áhyggjum. Það veldur mér svo enn meiri áhyggjum að þau sjónarmið séu uppi hjá þessari samhentu ríkisstjórn að það eigi ekki að vera sömu lög og sömu reglur fyrir alla Íslendinga. Hv. þingmaður var mjög skýr í því og kallar það miðstýringaráráttu, að setja alla í sama mótið — að hafa sömu lög og reglur fyrir alla, sama mótið?

Virðulegi forseti. Fjölbreytni er góð en það er fráleitt að mismuna fólki eftir búsetu með þeim hætti sem hv. þingmaður er hér að tala fyrir. Það er algjörlega fráleitt. Það er ekkert að því að hafa mismunandi reglur og taka tillit til þess í atvinnustarfsemi með ýmsum hætti en þú verður hins vegar að hafa sömu reglur alls staðar. Það er ekki hægt að hafa mismunandi reglur eftir því hvar þú ert á landinu. Þannig er það núna og ég vona að hæstv. ríkisstjórn haldi áfram að framfylgja þeim hugmyndum — og ekki hugmyndum, þetta var komið mjög langt þegar ég fór úr ráðuneytinu og þeir hafa talað fyrir því að halda því áfram. Ég bara hvet þann hluta samhentu ríkisstjórnarinnar sem er fylgjandi einum lögum og reglum fyrir alla Íslendinga til dáða.