157. löggjafarþing — 37. fundur,  24. nóv. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.

265. mál
[18:25]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Svo ég haldi því til haga í umræðunni hverjar athugasemdir mínar eru við þetta frumvarp sem hér er til umræðu þá er það íhugunarefni hvort það sé rétt að menn geti bara skráð urðunarstað, skráð olíubirgðastöð eða skráð fiskimjölsverksmiðjur. Það er það sem ég hef bent á að geti orkað tvímælis vegna þess að þá tekur það möguleikann frá næstu nágrönnum og þeim sem hafa hagsmuna að gæta, m.a. matvælafyrirtækjum í næsta nágrenni, til að hafa áhrif á umgjörð fyrirtækisins. Þetta eru mínar athugasemdir sem ég vil halda til haga í þeim vaðli sem hefur verið hér í umræðunni um mína ræðu.

Hvenær á að hafa mismunandi reglur og mismunandi túlkun á reglum? Það er auðvitað þannig að við höfum ekki sömu reglur. Það á hv. þingmaður að vita, frú forseti, og hann á að vita að ef við erum t.d. með lítið sláturhús undir ákveðnu marki þá gilda ekki sömu reglur og þegar um stór sláturhús er að ræða. Það sama á við um lítil matvælafyrirtæki, þá er gefinn kostur á því að túlka reglurnar með öðrum hætti heldur en þegar um stórfyrirtæki er að ræða. Ástæðan er m.a. sú að ef eitthvað fer úrskeiðis hvað varðar framleiðslu, t.d. í heimavinnslu eða í einhverri bændavinnslu þar sem útbreiðsla matvörunnar er takmörkuð, þá hefur það minni áhrif og minni áhættu í för með sér en ef við værum að dreifa matvælum til alls landsins. Þá taka reglurnar mið af áhættu og þeim skaða sem frávik geta valdið. Þetta á hv. þingmaður auðvitað að vita sem einu sinni gegndi stöðu umhverfisráðherra.