breyting á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.
Virðulegi forseti. Nú er hv. þingmaður á einhverjum hlaupum frá þeim orðum sem hann sagði hér áðan. Hv. þingmaður hélt því fram að það væri miðstýringarárátta að hafa sömu reglur fyrir alla. Hvað þýða sömu reglur fyrir alla? Það er að ef þú ert með lítinn atvinnurekstur, eins og hv. þingmaður nefndi, þá eiga að vera sömu reglur sama hvar þú ert á landinu. Það er ekki þannig núna. Breytingarnar ganga út á það að litli atvinnureksturinn sé með sömu reglur sama hvar hann er á landinu. Auðvitað eru mismunandi reglur sem menn hafa eftirlit með, t.d. ef þú ert með bakarí eða bílasölu, og þú getur alveg sett málefnaleg rök fyrir því að hafa mismunandi reglur eftir stærð. En það sem hv. þingmaður er að vísa til og það sem hann hefur barist fyrir og það sem hann talar fyrir er að það séu mismunandi reglur eftir því hvar þú ert á landinu, þ.e. eitt umdæmi er með þessar reglur en hitt er með einhverjar allt aðrar reglur. Þegar verið er að koma því á, eins og ég var svo sannarlega að gera, að það séu sömu reglur fyrir sama atvinnurekstur sama hvar hann er á landinu, þá kallar hv. þingmaður það miðstýringaráráttu. Hv. þingmaður getur ekkert hlaupið frá eigin orðum, ekki frá þeim orðum sem hann var með hér í ræðu áðan í andsvörum og svo eru til einhverjar upptökur, virðulegur forseti, frá síðasta kjörtímabili ef út í það er farið.