157. löggjafarþing — 37. fundur,  24. nóv. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.

265. mál
[18:34]
Horfa

Pétur Björgvin Sveinsson (V):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Í sannleika sagt er ég eiginlega hættur að skilja í þessu hjá hv. þingmönnum hérna fram og til baka en þetta var áhugaverð umræða. Við ræðum hins vegar frumvarp sem snýr að gríðarlega mikilvægu máli, mál sem mætti í rauninni koma fram í fleiri málaflokkum en það er að einfalda kerfin okkar og gera þau skýrari og öll vinnubrögð faglegri. Ég held að ég geti verið nokkuð viss um að flestir séu sammála markmiðum frumvarpsins, bæði hv. þingmenn og umsagnaraðilar, (Gripið fram í: Það eru ekki allir. )en mikið er ég alla vega glaður að sjá að það sé loksins að komast einhver hreyfing á þennan málaflokk, tími til kominn. En núna erum við í þessum raunveruleika að þetta mál er komið fram og einföldun á þessu mikilvæga kerfi er að gerast. Ég held að það sé reyndar alveg hægt að segja að á mínum stutta þingferli, sem eru nú orðnir heilir þrír dagar, séu ekki mörg mál sem ég hafi verið jafn sammála um og þetta. En þetta er mál sem ég og félagar mínir í Viðreisn erum mjög ánægð með. Þetta rímar einstaklega vel við það sem við viljum gera hér á þingi og og ég styð þetta mál heils hugar. Mig langar samt að benda hæstv. ráðherra og hv. þingmönnum sem hér eru á að það er bara ákveðin innbyggð tortryggni, sérstaklega úti á landi, þegar kemur að því að einfalda kerfi og sameina stofnanir og það er gríðarlega mikilvægt að við pössum vel upp á að það verði vel gert í þessu máli, verkefni færist vel til, það verði tryggt fjármagn til þessara mismunandi verkefna innan Umhverfisstofnunar. — Ég held að þetta verði ekki mikið lengra hjá mér í bili en hlakka til andsvara.