breyting á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir prýðisræðu. Ég vil þó vekja athygli á því að þetta ferli var nú allt saman hafið, menn byrjuðu á þessu einföldunarverkefni á síðasta kjörtímabili þannig að það er ekki verið að byrja á því núna. Ég er hins vegar mjög ánægður með að þetta frumvarp sé komið fram enda var unnið að því í minni tíð og ég vona að þær breytingar sem hafa orðið í samráðsferli og í vinnunni séu til einföldunar og við munum styðja það og hæstv. ráðherra á stuðning í stjórnarandstöðunni. Hv. þingmaður kom inn á einn þátt sem er mjög mikilvægur, hann talaði um tortryggni landsbyggðarinnar. Og af því að hv. þingmaður er núna í stjórnarmeirihlutanum þá vil ég hvetja hann til dáða vegna þess að þegar við sameinuðum stofnanirnar, þessar þrjár, fluttum við höfuðstöðvarnar allar út á land. Það er hins vegar ekki nóg, það verður að fylgja því eftir þannig að starfsemi sé bæði þar og annars staðar úti á landi. Ég vil bara hvetja hv. þingmann til dáða að fylgja því eftir sem var ákveðið. Þessar höfuðstöðvar eru á Hvolsvelli, Akureyri og Akranesi. Það verður að vera pólitískur vilji til að fylgja því eftir að stöður séu auglýstar þar sem verkefnin eru, því að flest af þessum verkefnum eru úti á landi.
Hv. þingmaður er þingmaður Viðreisnar og talar hér um, sem ég er algerlega sammála og við Sjálfstæðismenn, einföldun á kerfinu og ferlum og öðru slíku. Nú erum við að sjá breytingar á jafnlaunavottuninni, sem ég fagna, en svo þegar maður fer að skoða þetta þá er þetta enn þá mikil byrði á fyrirtækjum þrátt fyrir breytingar. Ég spyr hv. þingmann hvort hann vilji ekki beita sér fyrir því að menn geri þetta valfrjálst því það liggur alveg fyrir að fyrir lítil fyrirtæki, jafnvel þó að þessi breyting nái fram að ganga, er þessi vottun mjög íþyngjandi (Forseti hringir.) og það hefur ekki verið sýnt fram á að hún hafi verið að skila því sem ætlað var. Nú spyr ég hv. þingmann hvort hann vilji ekki (Forseti hringir.) tala um fyrir ráðherrum ríkisstjórnarinnar og ganga lengra þegar kemur að jafnlaunavottuninni.