breyting á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið en af því að ég tek eftir því að stjórnarþingmenn fara svolítið frjálslega með staðreyndir og segja að ekkert hafi verið klárað þá voru stigin stærstu skrefin í einföldun á síðasta kjörtímabili, stækkunarfrumvarpið t.d. sem hefur leitt af sér gríðarlega mikla aukna orkuvinnslu án þess að nokkur hafi tekið eftir því, svona alla vega í umræðunni. Það var fyrsta málið eða annað málið sem við kláruðum í því ráðuneyti sem ég var í. Við kláruðum mál um sameiningar stofnana, mestu sameiningar stofnana sem höfðu verið í áratugi. Skráningarreglugerðin sem ég og hv. stjórnarþingmaður Sigurjón Þórðarson ræddum hér, það var farið af stað með það mál og eru komnar 60 atvinnugreinar þar inn og áframhald á því. Þannig að það er mjög ósanngjarnt að halda því fram að hlutirnir hafi ekki verið kláraðir. Svo sannarlega hefði ég viljað vera í þeirri stöðu eins og eftirmaður minn að fá á skrifborðið tilbúin frumvörp og alla þá vinnu sem var búið að vinna og var líka í gangi. Ég er ekki að ásaka hv. þingmann sem er hér nýkominn inn, ég fagna honum og býð hann velkominn. Ég get vel skilið að hann hafi kannski ekki verið inni í þessu öllu, hann hefur kannski hlustað aðeins of mikið á forystumenn síns flokks sem hafa því miður ekki getað farið rétt með þessi mál. Ég er ekkert að biðja hv. þingmann um að úttala sig um það núna og er ekki að reyna að koma honum í einhverja erfiða stöðu, en bara í fullri vinsemd þá liggur alveg fyrir að það er búið að taka út jafnlaunavottunina. Við vitum hvaða afleiðingar hún hefur haft fyrir litlu fyrirtækin og reyndar stóru líka, m.a. hafa opinberar stofnanir kvartað mikið undan þessu. Það er gott að menn ætli að létta eitthvað á þessu en eftir stendur að það á samt sem áður að hafa miklar kvaðir á litlum atvinnurekstri og atvinnurekstri almennt í landinu. (Forseti hringir.) Ég vona að hv. þingmaður beiti sér fyrir því að menn taki skrefið alla leið.