breyting á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.
Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir góða og líflega umræðu hérna í kvöld. Það er alveg rétt sem hér hefur komið fram, það voru stigin mörg mjög mikilvæg skref á síðasta kjörtímabili þegar kemur að orkumálum, t.d. með sameiningu Umhverfisstofnunar og Orkustofnunar sem hefur stutt mjög við framvinduna síðustu mánuði og sú stofnun er einmitt að skila í rauninni meiri framleiðni og vinna hraðar heldur en kannski marga hefði órað fyrir. Eins skipti stækkunarfrumvarpið mjög miklu máli sem hv. þingmaður og forveri minn lagði fram snemma í sinni ráðherratíð. En það sem kannski vantaði svolítið voru breytingar til að liðka fyrir nýframkvæmdum og þar er þetta frumvarp mjög mikilvægt. Það lágu fyrir drög að því þegar ég kom inn í ráðuneytið. Það sem við ákváðum að gera var að breyta nálguninni að verulegu leyti. Þær heimildir sem Umhverfis- og orkustofnun fær eru talsvert víðtækari en áður var gert ráð fyrir. Auk þess er mælt fyrir um forgangsmeðferð virkjunarkosta í orkunýtingarflokki rammaáætlunar í staðinn fyrir að vera með sérstaka kröfu um rökstuðning fyrir því að verkefni séu til þess fallin að ýta undir kolefnishlutleysi eða orkuskipti. Svo erum við auðvitað búin að bæta við fjölda ákvæða og erum að hreyfa við fleiri lagabálkum heldur en áður var kannski gert ráð fyrir. Þetta eru 12 lagabálkar allt í allt og við erum með sérstaka áherslu á jarðboranir þar sem við erum að færa upp matskilyrðismörkin þannig að færri framkvæmdir séu háðar umhverfismati og einmitt afnema þessa kröfu um starfsleyfi fyrir hverri einustu borframkvæmd. Þetta eru gríðarlega mikilvægar breytingar. Með þessu frumvarpi, og samspili þess við ýmsar aðrar aðgerðir og fleiri frumvörp, þá er verið að stíga mjög mikilvæg skref í orkumálum að ég tel.
Annað sem ég minntist á og skiptir máli er að það er verið að liðka fyrir því að gefin séu út rannsóknarleyfi til vindorkunýtingar á hafi utan netlaga og til sjávarfallavirkjana. Auk þess er verið að stíga stærri skref en áður varðandi afhúðun, afnám gullhúðunar. Sumt af þessu byggir á tillögum sem komu fram á mjög góðri vinnustofu sem ég blés til í júní með orkugeiranum. Þar voru sett mjög skýr skilyrði fyrir þátttöku; aðilum var gert að leggja fram beinharðar tillögur að laga- og reglugerðarbreytingum. Úr þessu kom mjög góður efniviður sem við höfum verið að vinna með og verður áfram unnið með bæði síðar á þessu löggjafarþingi og á því næsta. Ég tel að það séu einnig talsverð tækifæri til einföldunar regluverks, t.d. þegar kemur að innleiðingu Evróputilskipana, t.d. RED-pakkanna. Þar er Evrópusambandið að stíga stór skref til einföldunar á regluverki og margt þar sem mætti heimfæra yfir á íslenskar aðstæður. Þar er hægt að nota tækifærið og stíga enn stærri skref. Þessi vegferð heldur áfram af fullum þunga.