breyting á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hans ræðu. Svo það sé alveg skýrt — ég held að það hafi að vísu alveg komið skýrt fram, enda hef ég verið í hörðum deilum við stjórnarliða til að verja hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og frumvarp hans. Ég mun halda því áfram. Ég tel hins vegar að það sé betra fyrir allt, í fyrsta lagi er það rétt og sömuleiðis held ég að það sé betra fyrir stjórnmálin, að sagt sé frá því hvað hefur verið gert því að það náðist mikill árangur á síðasta kjörtímabili. En svo það sé alveg sagt: Það tók langan tíma bara að greina frumskóginn. Það þurfti að fá utanaðkomandi aðstoð til þess því að ekki var hægt að fá hana innan úr kerfinu. Ég er mjög ánægður að heyra það, sem kemur ekki á óvart, að Umhverfis- og orkustofnun sé að virka vel, þess vegna taldi ég að það væri vont að fá svona litla umræðu þegar menn breyttu hér forsetaúrskurði.
Það hefði verið skynsamlegt, til að einfalda, að taka þann hluta sem snýr að umhverfismatinu úr Skipulagsstofnun og færa það yfir í ráðuneyti hæstv. ráðherra og sameina það inn í Umhverfis- og orkustofnun. Við vildum ekki fara í þá vegferð því að sameiningin gekk mjög vel en tók tvö ár. Oft er það þannig að þegar menn þurfa að fara í stórar breytingar þá verða menn að sætta sig við að það taki tíma að breyta því. Fyrsta frumvarpið um afhúðun kom ég hér með fram og hefur verið samþykkt. Það er hins vegar alveg ótrúlegur draugur og ég er mjög ánægður að heyra það að hæstv. ráðherra sé að vinna að því. Og bara svo það sé alveg sagt er hæstv. ráðherra alveg ótrúlega heppinn með stjórnarandstöðu. Ég hvet hæstv. ráðherra til að nýta sér það af því að hann fær stuðning til að halda áfram þessari vegferð. Ég segi það bara mjög gott mál (Forseti hringir.) að hæstv. ráðherra sé kominn með þetta frumvarp og við munum að sjálfsögðu styðja það.