Störf þingsins.
Frú forseti. Á Íslandi er opið, frjálslynt og framsækið samfélag. Það hefur verið okkar gæfa að hingað hefur fólk flutt sem hefur gert okkur sterkari, lagst á árarnar með okkur og tekið þátt í að þroska íslenskt samfélag. Við erum að tala um nýja Íslendinga sem hafa unnið í fiskvinnslum, við heilbrigðisþjónustu, í hugverkaiðnaði, stofnað fyrirtæki og svo mætti lengi telja, búið til verðmæti sem við öll njótum hér í dag. Við þurfum á því að halda að fólk vilji koma hingað og taka þátt í að byggja landið með okkur. Við þurfum á þekkingu, hæfni og hugviti þeirra að halda, ekki bara til að styðja við hagvöxt heldur til að gera samfélagið okkar sterkara, víðsýnna og áhugaverðara. Eitt mesta hrós sem samfélag getur fengið er að fólk sjái tækifæri í að flytjast til þess og það versta sem hvert ríki lendir í er að missa fólk frá sér.
Hér hefur ríkt algjört stefnuleysi í útlendingamálum. Til hefur orðið flókið og ósamræmt bútasaumskerfi sem þjónar hvorki fólki né samfélagi. Sumir halda því fram að lausnin sé meiri harka, meiri tortryggni og að vandinn sjálfur sé að fólk vilji flytja hér til lands. Viðreisn sér þetta öðruvísi. Við ætlum að ná árangri með skýrri sýn og staðfestu. Við viljum sanngjarnt kerfi með fyrirsjáanlegum reglum sem gilda um alla en taka einnig tillit til þeirra sem eru í mjög viðkvæmri stöðu, kerfi sem skapar raunhæf tækifæri fyrir fólk til að fóta sig og ná árangri. Aðflutningur fólks hefur knúið hagvöxt áfram. Verkefnið nú er að tryggja að sú þróun skili sér í bættum lífskjörum og auknum hagvexti á hvern íbúa.
Frú forseti. Hæstv. ríkisstjórn og hæstv. dómsmálaráðherra eru að stíga mikilvæg skref, stundum erfið en löngu tímabær, til að koma reglu á málaflokkinn sem hefur verið of lengi í óreiðu. Markmiðið er ekki að loka landinu heldur að tryggja réttlátt, ábyrgt og manneskjulegt kerfi og þannig tryggjum við að á Íslandi verði áfram það samfélag sem við elskum; opið, frjálslynt og framsækið.