157. löggjafarþing — 38. fundur,  25. nóv. 2025.

Störf þingsins.

[13:57]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Sjávarútvegsdagur Deloitte og fleiri var haldinn í morgun. Jónas Gestur Jóhannsson endurskoðandi fór þar með erindi sem unnið er úr gagnagrunni Deloitte. Deloitte hefur unnið mjög ítarlegan gagnagrunn um afkomu og rekstrarskilyrði íslensks sjávarútvegs á undanförnum tuttugu og eitthvað plús árum. Það var sláandi að sjá upplýsingar um afkomu stærri fyrirtækja í greininni, hvernig hún er að þróast. Það hefur gefið verulega eftir á undanförnum árum og arðsemi eigin fjár er sáralítil og það í samanburði við aðrar atvinnugreinar í landinu. Ef hækkanir sem fyrirhugaðar eru á næsta ári hefðu verið komnar á árunum 2023–2024 hefði arðsemi eigin fjár verið um 4%. Það gefur augaleið að það er ekki áhugaverð fjárfesting þegar ávöxtunin er ekki meiri en við verðum að halda því til haga að þrjú fyrirtæki, stórfyrirtæki, eru á markaði og lífeyrissjóðir eiga þar mikið undir sem og aðrir landsmenn. Áskoranir í greininni eru gríðarlega miklar í dag. Það eru tollar í Bandaríkjunum, það eru átök og stríð. Það eru efnahagslegar áskoranir, svo sem sterk króna, og það er samdráttur í aflaheimildum á okkar helstu nytjastofnum, mjög sláandi samdráttur til að mynda í uppsjávargeiranum. Viðtöl sem voru birt við fulltrúa þjónustu- og tæknifyrirtækja voru líka sláandi; verulegur samdráttur í öllum pöntunum og í allri þróunarvinnu sem hefur verið leidd af sjávarútveginum í samvinnu við þessi fyrirtæki og sett okkur í fremstu röð.

Virðulegur forseti. Það er að rætast sem spáð var, að afleiðingar hækkunar gjalda á sjávarútveginn muni ekki skila sér. Það liggur alveg í augum uppi. Það er sama og var hér vitnað í með kílómetragjöld og hækkanir á vörugjöldum á bíla. Þetta mun ekki skila sér. Hvenær ætlar þessi ríkisstjórn að læra það að rekstrarumhverfi þessarar grunnatvinnugreinar okkar (Forseti hringir.) verður að vera þannig að við stöndum samkeppnishæfni? Þá skilar greinin sem mestu.