157. löggjafarþing — 38. fundur,  25. nóv. 2025.

Verndarráðstafanir ESB vegna innflutnings á járnblendi, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.

[15:29]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir skýrsluna sem hún hefur flutt hér og öðrum þingmönnum fyrir umræðuna. Ég verð hins vegar að játa að ég átta mig ekki alveg á umræðunni hér. Mér finnst einhvern veginn öllu snúið á hvolf. Hér koma þingmenn stjórnarflokkanna og láta í veðri vaka að aðrir þingmenn séu að grafa undan EES-samningnum eða að hér gangi maður undir manns hönd að grafa undan EES-samningnum. Ekkert grefur meira undan EES-samningnum en þessi sífelldu, síendurteknu og algerlega að ósekju ummæli um að menn séu að grafa undan EES-samningnum. Ég hef ekki greint annað en að hér sé mikil samstaða meðal þingmanna um að líta á þetta brot á EES-samningnum grafalvarlegum augum, líta á þetta sem brot, sem það svo sannarlega er. Þar með liggur afstaða manna fyrir í því að það er í gildi samningur sem menn vilja að menn haldi í heiðri.

Þar næst, á eftir þessu fyrsta ákalli þingmanna ríkisstjórnarflokkanna, þá virðist verkefnið vera það að þakka fyrir hagsmunagæsluna, þakka starfsmönnum utanríkisráðuneytisins fyrir vel unnin störf, þakka ráðherrum, þakka sér sjálfum; þeir hafa lýst því sjálfir hvernig þeir hafi átt ágæta fundi með kollegum sínum í útlöndum og allt sé þetta hin mesta hagsmunagæsla sem hafi farið fram. Ég get svo sem alveg tekið undir þær þakkir svo langt sem þær ná, en ég vil aðeins rifja upp aðdraganda þessa máls og hagsmunagæslu í upphafi þessa máls.

Þannig var það nú að þingmenn hér, velflestir, urðu þess áskynja að ESB hygðist brjóta á EES-samningnum 6. ágúst síðastliðinn. Þá var boðað til fundar eftir að fréttir höfðu birst af þessu í fjölmiðlum. Það var boðað til fundar í hv. utanríkismálanefnd, þingmenn sem þar sitja voru boðaðir til fundar og þeir upplýstir um málið. Kemur þá í ljós að málið átti lengri aðdraganda, allt aftur til síðasta árs, komið ár síðan kannski. Þótt ég hafi ekki fengið neitt um það og ekki hafi verið lagt fram, sem full ástæða var til að gera, formlegt yfirlit yfir það hvernig þessu máli var háttað frá byrjun þá hefst a.m.k. í desember hálfopinber rannsókn Evrópusambandsins á möguleikum þess og fýsileika á að leggja þessa tolla á lönd, og þar með talið Noreg og Ísland. Í janúar hefst formleg hagsmunagæsla á vegum utanríkisráðuneytisins. Allt að einu heyrist ekki um það múkk hér í þingsal og ekki í hv. utanríkismálanefnd eða annars staðar. Það er síðan í ágúst sem þingmenn fá veður af þessu með lestri frétta. Ég hef gert athugasemdir við þetta. Ég hef spurt spurninga og ég hef ekki fengið viðhlítandi svör við því af hverju svo væri í pottinn búið. Bæði hefur það varðað hagsmunagæsluna að upplýsa þingmenn en fyrst og fremst hef ég lagt áherslu á að það er virðing við Alþingi sem hér var þverbrotin og menn hafa ekki einu sinni beðist afsökunar á þessu virðingarleysi og framgöngu gagnvart Alþingi í þessu máli. En gott og vel.

Það eru reyndar líka fluttar af því fréttir að hagsmunasamtök járnblendiframleiðenda í Evrópu hafi óskað eftir þessum aðgerðum, þau sjálf hafi óskað eftir þessum aðgerðum. Maður veltir því fyrir sér og því hefur a.m.k. ekki verið svarað hér hvort t.d. fyrirtæki sem starfa hér á Íslandi en aðallega í Noregi hafi verið hluti af þeim hagsmunasamtökum og tekið þátt í þeirri kröfugerð. Mér finnst það skipta máli að það liggi fyrir með hvaða hætti fyrirtæki sem eru staðsett á Íslandi hafi mögulega átt þátt í því að vinna að þessu mikla samningsbroti á EES-samningnum.

Það er enginn ágreiningur um það og það er gott að heyra að þetta sé skýrt samningsbrot. Þetta samningsbrot hefur hins vegar verið réttlætt með ýmsum undarlegum hætti, m.a. hefur verið vísað til alþjóðaviðskiptasambandsins WTO í því sambandi og því haldið fram að Evrópusambandið hefði ekki og gæti ekki lagt á svona verndartolla án þess að hafa Ísland og Noreg með í því. Þetta er þvælulögfræðiskýring að mínu mati en þessu hefur verið haldið fram. Og þessu var haldið fram gagnvart þingmönnum, a.m.k. var sagt að Evrópusambandið héldi því fram að það væri bundið í báða skó. Ef svo er þá er ekkert sem kemur í veg fyrir það að EES-samningurinn verði brotinn aftur og aftur og aftur. Það er eitthvað sem íslensk stjórnvöld þurfa að svara fyrir hvernig þau ætla að svara þessari málsástæðu Evrópusambandsins. Framkvæmdastjóri Evrópusambandsins, frú von der Leyen, segist vera miður sín og segir að þetta gefi ekki fordæmi, eins og bent hefur verið á. Þetta sé einskiptisákvörðun. Þetta hafi ekki verið hennar ákvörðun, þetta hafi verið ákvörðun samningsríkjanna.

Hvers virði eru þá orð hennar ef þetta er ákvörðun samningsríkjanna, sem þetta vissulega er? Hvernig gerast kaupin á eyrinni í pylsugerðinni í Brussel, í Evrópusambandinu? Þegar ríki óska eftir því að slíkir verndartollar séu lagðir á, leitar þeirri kröfu sinni fylgis meðal annarra ríkja, hvað borga þau? Með hvaða hætti borga þau þeim ríkjum fyrir stuðninginn við slíkar verndarráðstafanir? Hvað kemur næst? Halda hv. þingmenn hér uppi á Íslandi að slíkur greiði við málstað sumra ríkja verði ekki endurheimtur með einhverjum hætti í Evrópusambandinu? Halda menn það virkilega að þau ríki sem létu draga sig út í það að greiða atkvæði með þessum verndartollum ætli ekki að innheimta þann greiða með einhverjum hætti?

Þess vegna hlýt ég að spyrja hæstv. utanríkisráðherra hvort utanríkisráðuneytið og hún hafi leitað af sér allan grun í dag um það hvort í farvatninu séu einhverjar sambærilegar aðgerðir af hálfu Evrópusambandsins, sambærileg rannsókn sem er upphaf og forsenda fyrir þessum aðgerðum, rannsókn Evrópusambandsins á tilteknum skilgreindum mörkuðum, einhverjum öðrum mörkuðum. Menn láta sér detta í hug álið t.d. Þetta getur verið víðari spurning, það þarf ekki bara að vera ums það. Eru í farvatninu hjá Evrópusambandinu einhverjar rannsóknir eða hugmyndir um rannsóknir á tilteknum mörkuðum með það að leiðarljósi að mögulega að velta fyrir sér fýsileika þess að taka upp verndartolla? Þetta er mikilvæg spurning sem við þurfum að hafa í huga og ég ætlast til þess að þeir sem sinna þessari hagsmunagæslu séu með svör við þessu á reiðum höndum.

Hér hefur verið rætt um EES-samninginn og ítreka það sem ég sagði áðan, ég greini ekki annað en stuðning við það að menn vilji halda mönnum við efnið í EES-samningnum. Það þýðir hins vegar ekki að við höldum áfram eins og ekkert hafi í skorist til. Það þýðir það ekki. Ein spurning sem við ættum auðvitað að velta fyrir okkur er: Er nauðsynlegt að taka samninginn upp að því er varðar úrlausn ágreiningsmála eins og nú hafa komið upp? Það liggur fyrir að EFTA-dómstóllinn er ekki í færum lagalega til að fjalla um brot Evrópusambandsins gagnvart EFTA-ríkjunum. Það er heldur ekki hlutverk Evrópudómstólsins að gera það. Mögulega gæti Elkem, eða þessi fyrirtæki sem verða fyrir þeim, sótt einhver sín mál þangað. Gallinn við samninginn er að í upphafi var ekki samið um — það hvarflaði ekki að mönnum að Evrópusambandið yrði brotlegt við samningsríki sín. En nú er sú staða komin upp. Væri þá ekki einnar messu virði að velta því aðeins fyrir sér hvort það þyrfti ekki að koma upp einhverjum vettvangi til að útkljá það, þ.e. öðrum en sameiginlegu EES-nefndinni, af því að hún hefur verið nefnd til sögunnar í þessu sambandi? Þá væri reyndar líka gott að heyra frá hæstv. utanríkisráðherra hvort hún meti það fýsilegt eða til einhvers, vænlegt til árangurs, að fjalla um þetta tiltekna samningsbrot í sameiginlegu EES-nefndinni?