fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.
Frú forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof og lögum um sorgarleyfi. Frá gildistöku laga um fæðingar- og foreldraorlof hafa breytingar á fjárhæðum greiðslna til foreldra í fæðingarorlofi almennt miðað við fæðingardag barns eða þann dag sem barn var frumættleitt eða tekið í varanlegt fóstur. Hafi fjárhæðum innan fæðingarorlofskerfisins verið breytt hafa þeir foreldrar sem eignuðust barn rétt áður en hækkunin tók gildi ekki átt rétt á þeirri hækkun heldur einungis þeirri fjárhæð sem var í gildi þegar barnið fæddist.
Með frumvarpinu er stefnt að því að breyta þessu núgildandi fyrirkomulagi greiðslna í fæðingarorlofi þannig að breytingar á greiðslum í kerfinu eigi framvegis við um alla foreldra sem nýta rétt sinn á sama tíma eða eiga inni ónýttan rétt, óháð því hvenær barnið þeirra fæðist, er frumættleitt eða tekið í varanlegt fóstur. Auk þess er í frumvarpinu lagt til að fjárhæðir greiðslna á grundvelli laga um sorgarleyfi skuli eiga við um alla foreldra sem nýta rétt sinn samkvæmt lögunum óháð því hvenær barnsmissir, andvanafæðing, fósturlát eða makamissir á sér stað. Foreldrar og makar í sorgarúrvinnslu eiga ekki að þurfa að hafa áhyggjur af afkomu sinni í viðbót við sorgina sem þeir eru að glíma við. Með fyrirhuguðum breytingum er leitast við að tryggja betur afkomuöryggi foreldra í fæðingarorlofi og sorgarleyfi og eyða óvissu þeirra um hverjar fyrirhugaðar tekjur verði á því tímabili í lífinu. Með þessum breytingum mun jafnræði milli foreldra í fæðingarorlofi jafnframt verða betur tryggt og samræmi aukast í greiðslum til þeirra.
Áætluð fjárhagsáhrif á ríkissjóð vegna frumvarps þessa, verði það óbreytt að lögum, eru aukin tímabundin útgjöld um 480 millj. kr. vegna breytinga á lögum um fæðingar- og foreldraorlof og falla þau til á árunum 2026 og 2027. Kemur sú útgjaldaaukning til vegna hækkunar á hámarksfjárhæð greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði sem þegar hefur verið ákveðin, þ.e. úr 800.000 kr. í 900.000 kr., og mun taka gildi þann 1. janúar næstkomandi. Til stóð að sú hækkun næði til foreldra barna sem fæðast, eru frumættledd eða tekin í varanlegt fóstur eftir 1. janúar 2026, en nú verður það sem sagt að lögum 1. janúar næstkomandi. Verði frumvarp þetta að lögum mun hækkunin hins vegar taka til allra foreldra sem eiga rétt á slíkum greiðslum sem og ónýttan rétt innan kerfisins þegar breytingin tekur gildi, óháð því hvort barn fæðist fyrir eða eftir áramót. Búið er að fjármagna þær breytingar sem frumvarpið boðar í fjárlagafrumvarpi ársins 2026 sem nú er í meðförum þingsins. Fyrr á árinu kom til umræðu að gera sams konar breytingar og þær er frumvarp þetta leggur til milli umræðna í öðru máli, um að efla fæðingarorlofsrétt fjölburaforeldra. Þá lá ekki fyrir hvernig fjármögnun yrði háttað og því var ákveðið að geyma þessar breytingar og taka fyrir á haustþingi. Nú eru þær komnar fram í frumvarpsformi, fullfjármagnaðar, og ég á virkilega von á því að málið fái góðar undirtektir þingheims.
Ég er stolt af því að mæla fyrir þessum breytingum hér í dag sem ég tel vera mikið framfaraskref fyrir foreldra og fjölskyldur og styðja enn betur við fólk þegar það stendur á tímamótum, gleðistundum nýrrar fjölskyldu eða erfiðustu augnablikum sorgarinnar. Ég bind miklar vonir við að þingið sameinist um að styðja þessa mikilvægu réttarbót.
Virðulegi forseti. Að lokum legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. velferðarnefndar að lokinni þessari umræðu.