fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ástæðan fyrir því að þetta var ekki komið fyrr er að ráðherranefnd um ríkisfjármál ákvað að það ætti skilyrðislaust að vera búið að fjármagna þetta og taka inn í okkar fyrstu fjárlög sem nú eru til vinnslu á Alþingi Íslendinga. Það er nú aðalástæðan. Fyrir utan það get ég alveg sagt það hér með góðri samvisku að hv. þingmaður var einmitt í góðu samtali við okkur í vor og kom með sína breytingartillögu sem við ræddum mjög svo vel þá. Ég veit að hv. þingmaður skilur einnig að þegar við erum að koma með einhver mál sem kosta mikla fjármuni þá viljum við og vönduð ríkisstjórn vill venjulega alltaf vera búin að fjármagna hlutina áður en þeir eru samþykktir á hinu háa Alþingi.