157. löggjafarþing — 38. fundur,  25. nóv. 2025.

fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.

286. mál
[17:00]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Ég held að við séum bara algerlega á sama máli. Ég er algerlega sammála hv. þingmanni. Við þurfum að koma með algjöra heildaryfirsýn. Hv. þingmaður talar um tekjuviðmið og tekjumörkin sem við erum með hér, 18 mánuði fyrir töku fæðingarorlofs eða fæðingu, þegar við lítum til landanna í kringum okkur þá virðist vera svolítið meiri losarabragur þar á mörgum stöðum, kannski jafnvel allt niður í það að ekki er verið að líta til nema eins, tveggja mánaða undangenginna til að miða við launin. En gögnin skulum við fá og það er sannarlega þess virði. Ég þakka hv. þingmanni, hann mun bara halda áfram að fylgja málunum okkar eftir. Við höfum ekki verið að reka hér fjölskylduvæna stefnu, svo það sé bara sagt, undangengin ár og undangengnar ríkisstjórnir hafa sofið á verðinum hvað lýtur að búsetuöryggi og að efla í raun ekki stuðning við ungt fólk og barnafjölskyldur. Við erum að dragast saman í orðsins fyllstu merkingu, nú er ríflega barn á hverja konu. Það er af sem áður var og það er bara út af því að það er orðið erfitt og þungt í búi fyrir ungt fólk og fjölskyldufólk að búa á fallega landinu okkar. Það er staðreynd þannig að betur má ef duga skal. Þess vegna þurfum við að halda áfram að koma með hvata í kerfið.

Þótt hv. þingmaður sé alls ekki að spyrja mig að þessu þá hefur maður litið líka til landanna í kringum sig. Hvað eru þeir að gera í Finnlandi og hingað og þangað, jafnvel Kanada? Af hverju skyldum við ekki koma með hvata inn í kerfið og veita kannski ungum foreldrum stuðning á fyrsta árinu með því að gefa þeim barnavagn og bleiur, bara svo eitthvað sé nefnt? Þetta er svona fram hjá öllu öðru og alls ekki í spurningunni, en ég er að segja: Við viljum efla fjölskylduformið og styðja við unga fólkið okkar og barnafjölskyldur. Ég segi bara: Áfram veginn. Við viljum fjölga okkur miklu hraðar og betur þannig að allir geti líka vel við unað.