157. löggjafarþing — 38. fundur,  25. nóv. 2025.

fæðingar- og foreldraorlof og sorgarleyfi.

286. mál
[17:09]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hennar ræðu sem var náttúrlega alveg frábær. Ég get tekið undir orð hennar að flestu leyti. Ég ætla ekkert endilega að tína út úr það sem ég ætla ekki að samþykkja en ég get alla vega nefnt það að í Danmörku eru t.d. hæstu greiðslur í fæðingarorlofi frá danska ríkinu, eða því kerfi, 384.000 kr. Þar er kerfið öðruvísi vegna þess að þar koma vinnuveitendurnir meira að því heldur en það er hér hjá okkur, danska ríkið greiðir 384.000 kr. Ég veit ekki alveg hversu lengi en hér erum við með þessi tvö ár, þetta tveggja ára svigrúm, fyrir foreldra til að taka orlofið sitt. Ég held að við getum gert miklu betur. Ég finn þessa hugsjón hjá hv. þingmanni og báðum hv. þingmönnum sem á undan hafa komið, hv. þm. Sigurði Erni — ég sé því miður svo illa að ég get ekki séð hvers son hann er. (Gripið fram í: Hilmarsson. )Hv. þm. Sigurður Örn Hilmarsson, svo maður haldi nú öllu til haga, og hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir. Ég held að við eigum að geta gert miklu betur og að við séum bara á þeirri vegferð. Mér líður vel að koma með mál þar sem maður finnur svona hlýju og utanumhald og skynja þennan góða vilja til verksins. Ég vil þakka hv. þingmönnum báðum tveim, Sigurði Erni Hilmarssyni og Bryndísi Haraldsdóttur, fyrir þeirra góða innlegg í þessa umræðu.