almannavarnir.
Ég er algjörlega þeirrar skoðunar, af því að hér er um mjög viðamikið frumvarp að ræða, að þessi þáttur um hvernig við högum eftirlitinu komi til umfjöllunar hjá allsherjarnefnd. Ég vil þó nefna að í núverandi framkvæmd ber ríkislögreglustjóra að halda rýnifundi í kjölfar þess að almannavarnastigi hafi verið aflétt. Fram hefur komið gagnrýni á þetta fyrirkomulag þar sem í mörgum tilvikum hefur ekki verið talin þörf á því og viðbragðsaðilar sammála um það. Nú er því lögð til þessi breyting, að ríkislögreglustjóri skuli taka ákvörðun um hvort halda skuli rýnifund og að aðrir viðbragðsaðilar geti líka óskað eftir því.
Af því að við tölum um rannsóknarnefndir þá er það nú þannig að í dag er t.d. yfirstandandi vinna varðandi Súðavík. Þar finnst mér Alþingi sannarlega hafa sýnt það í verki að við viljum halda þessu eftirliti gangandi og mér finnst bara góður bragur á því ef allsherjarnefnd ræðir hvert fyrirkomulagið eigi að vera. (Forseti hringir.) Varðandi samstarf og samvinnu við Norðurlöndin þá er ég nýkomin heim af ráðherrafundi og mér sýnist sem gott samstarf muni aukast (Forseti hringir.) enn frekar með vísan til þess hvert ástandið er í heiminum öllum núna.
(Forseti (EÁs): Forseti minnir hv. ræðumenn á að tíminn er ein mínúta í þessum andsvörum hér.)