almannavarnir.
Frú forseti. Svarið er auðvitað fram komið því að engin slík regla er í þessu frumvarpi. Það er ekki verið að rjúfa neina þjóðarsátt og hér er ekki verið að gera neina stefnubreytingu. Hv. þingmaður þarf ekki að útskýra fyrir mér hvað það þýðir að dómkveðja matsmenn því það veit ráðherra ósköp vel. Það stendur til að meta kostnað ríkissjóðs af þeim aðgerðum sem ráðist var í. Uppsetning varnarmannvirkja, eins og vegna snjóflóða, hefur áhrif á kjör sem Náttúruhamfaratrygging Íslands nýtur vegna endurtrygginga og það er mikilvægt að viðurkennt sé að stjórnvöld hafi tæknilega getu til að draga úr þeirri vá þannig að við njótum eðlilegra kjara í endurtryggingu vegna náttúruhamfara. Þetta eru dómkvaddir matsmenn. Dómsmál er ekki hafið, það held ég að þingmaðurinn þekki. Það skiptir máli að fá fram mat á þessum ábata, hver hann var og hver hann er af slíkum aðgerðum, þegar kemur að því að verja hagsmuni Íslands í endurtryggingum á mögulegum tjónum.