almannavarnir.
Virðulegur forseti. Mig langar aðeins að ræða hér, í ekkert svo löngu máli, frumvarp til laga um almannavarnir frá hæstv. dómsmálaráðherra. Ég þakkaði hæstv. ráðherra fyrir það áðan að leggja frumvarpið fram og ég geri það hér aftur því að um afar mikilvægt plagg er að ræða. Það er svolítið áhugavert að koma í þingsal og vera með ræðu um almannavarnir á eftir hv. þm. Víði Reynissyni sem er sennilega einhver mesti sérfræðingur landsins í þessum málum en það er afar gott að hlusta á Víði. Eins og ég segi, það eru sennilega fáir ef einhverjir sem hafa meiri þekkingu á þessum málaflokki en hv. þingmaður. Ég hef aðeins komið nálægt þessu í mínum störfum og mínu fyrra lífi, aðallega sem yfirlögregluþjónn á Norðurlandi vestra. Mig langar að tala aðeins út frá minni reynslu um mikilvægi almannavarnakerfisins. Þetta er algert grundvallarkerfi í öllu okkar skipulagi. Eins og hv. þm. Víðir Reynisson fór hér vel yfir hafa nú verið gerðar á þessu kerfi breytingar í gegnum tíðina, flestar til betrunar og bætingar fyrir kerfið. Ég tel að það frumvarp sem við erum með hér nú sé einmitt í þá átt.
Mig langar hins vegar aðeins að velta fyrir mér þeirri spurningu og þeim vangaveltum sem ég hef verið með í kollinum lengi, svona hvert við getum stefnt með þetta almannavarnakerfi í heild sinni, hvernig við myndum sjá kerfið ef við værum að byggja það upp frá grunni í dag. Ef við værum bara með hreint blað fyrir framan okkur og ættum að byggja upp almannavarnasystem, hvernig myndum við gera það? Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að það kerfi sem við myndum sennilega byggja upp væri ekkert mjög frábrugðið því kerfi sem við erum með í dag, enda höfum við séð það margoft að þetta kerfi virkar gríðarlega vel. Það er staðreynd að t.d. löggæslan í landinu myndi ekki geta virkað eins og hún gerir í dag án aðkomu almannavarna. Við höfum séð mörg stór og minni verkefni þar sem lögreglan hefur kallað til viðbragðsaðila og beitt almannavarnakerfinu til þess að ná utan um verkefni, nánast undantekningarlaust með góðum árangri.
Virðulegur forseti. Það er kerfið sem við erum búin að byggja upp, skilvirknin í kerfinu, sem er svo mikilvæg. Hver maður veit nákvæmlega hvert sitt hlutverk er. Hvort sem það er inni í stjórnstöð, á aðgerðastjórnstöðinni eða úti á vettvangi eru allir með sitt hlutverk á hreinu þannig að kerfið nær að hámarka sig, ef svo má að orði komast. Við getum þó alltaf gert betur og við getum alltaf bætt okkur og við eigum að læra af reynslunni. Ég tel að við séum klárlega að gera það hér með þessu frumvarpi og ég hlakka til að sjá hvaða umfjöllun þetta fær í nefndinni og hvernig það kemur út eftir 2. umræðu. Ég held að það verði áhugavert þegar búið verður að kalla til umsagnaraðila og væntanlega verða gerðar einhverjar breytingar á frumvarpinu, á ég von á. Því held ég að það sé kannski ekki tímabært að vera að eyða of miklum tíma í frumvarpið eins og það er núna.
Það sem mig langar hins vegar að benda á — og ég geri mér alveg grein fyrir því að sú breyting verður kannski og örugglega ekki gerð núna — en það er, eins og ég sagði áðan, hvernig horfir til framtíðar í kerfinu. Við erum með björgunarsveitirnar sem eru lykilþáttur í þessu almannavarnakerfi, sjálfboðaliða sem koma þegar á þá er kallað, sama í hvaða veðri, sama á hvaða degi, hvort sem það er yfir heitan júlímánuð eða á aðfangadagskvöld; það skiptir engu máli. Þessir aðilar eru boðnir og búnir að koma í hvaða verkefni sem þeir eru kallaðir í. Þetta er ómetanlegt. Þetta er algerlega ómetanlegt.
Það sem ég hef velt fyrir mér, virðulegur forseti, er í raun og veru staða þessara sjálfboðaliða í hinum ýmsu verkefnum almannavarna og lögreglu. Ég hef verið með björgunarsveitir í verkefnum þar sem við höfum verið að leita að fólki, stundum hættulegu fólki sem hefur verið undir áhrifum eða er vímað, og lögreglan hefur eðli málsins samkvæmt oft og tíðum ekki tæki og búnað til að eltast við þessa einstaklinga, sérstaklega ef þeir eru einhvers staðar utan þéttbýlis, og þá verðum við að nýta björgunarsveitirnar. Það sem ég er að reyna að koma hér inn á í þessari umræðu eru heimildir þessara einstaklinga þegar á reynir, heimildir björgunarsveitarmanna, valdbeitingarheimildir og heimildir til að gefa fyrirmæli og skipanir og þess háttar.
Við höfum líka séð björgunarsveitaaðila hér í þessum stóru verkefnum okkar. Ég man eftir þessu í Holuhrauni, ég sé þetta í þessum Reykjaneseldum þar sem við erum t.d. að setja björgunarsveitarfólk okkar á lokunarpósta. Þá veltir maður fyrir sér, þótt þessir einstaklingar starfi að sjálfsögðu í umboði lögreglustjóra: Hvaða heimildir hafa þeir til þess að grípa inn í? Hvaða þjálfun hafa þessir einstaklingar til þess að grípa inn í? Ef ég man rétt er það nú þannig að ef björgunarsveitirnar eru búnar að vera lengur en þrjá daga í útkalli þá fá þær reyndar greitt fyrir það. Við það er sami kostnaður og við útselda vinnu lögreglumanns og ég held að það sé mjög mikilvægt fyrir okkur á næstu misserum og árum að halda aðeins áfram með þessa hugmyndafræði og pælingu: Hvernig getum við eflt þennan hluta almannavarnakerfisins? Hvernig getum við gert umhverfi þessa fólks þannig að það sé þá betur varið lagalega, hafi betri stöðu lagalega, hafi betri þjálfun og búnað og heimildir til þess að bregðast við og takast á við þau fjölmörgu verkefni sem þeim eru falin af lögreglu eða almannavörnum?
Menn hafa talað um einhvers konar varalið lögreglu. Það hefur verið ein nálgunin og ég veit að gerðar hafa verið skýrslur og greiningar á því. Hvort það er leiðin ætla ég ekki að úttala mig um hér en ég held að ef maður horfir aðeins lengra fram í tímann sé þetta verkefni sem við þurfum að fara að huga að hvernig við leysum. Það er líka hinn þátturinn: Þegar þessar sveitir eru búnar að vera lengi að störfum, oft litlar og fámennar björgunarsveitir til þess að gera, hvert er þá þol þessara eininga? Hvað þolir þessi eining að vera lengi í verkefninu? Það er náttúrlega afskaplega misjafnt og þetta er fólk sem er í langflestum tilfellum í öðrum störfum sem það er þá að taka sér leyfi frá. Mín reynsla hefur verið sú að atvinnurekendur hafa verið alveg afskaplega liðlegir gagnvart björgunarsveitunum í gegnum tíðina, að hleypa þessu fólk í verkefnin, enda er þetta bara svona samfélagsleg skylda og samfélagsleg ábyrgð okkar allra. Það getur hins vegar tekið verulega í þegar þú ert kannski kominn upp í einhverjar vikur, ég tala nú ekki um mánuði. Ég hef heyrt dæmi um einstaklinga, í raun einyrkja sem eru bara að starfa hjá sjálfum sér; það getur haft verulega íþyngjandi áhrif á rekstur þeirra og tekjur ef menn eru komnir í þetta. Það er í raun og veru björgunarsveitin sem fær greitt en ekki starfsmaðurinn. Ég geri mér grein fyrir því að þetta rant mitt hér er ekki efni þess frumvarps sem við fjöllum um í dag en þar sem þetta hefur verið mér ofarlega í huga ansi lengi sá ég tækifæri á borðinu að koma með þetta inn í þessa umræðu og vekja aðeins máls á þessari hlið sem mér hefur í gegnum tíðina fundist allt of lítið rætt um.
Virðulegur forseti. Ef ég vík aftur að frumvarpinu ætla ég að segja það hér að lokum, bara eins og ég byrjaði á að segja, að ég fagna þessu frumvarpi. Það er margt mjög gott í því. Þetta er klárlega skref í rétta átt og ég óska nefndinni velfarnaðar í því mikilvæga verkefni að fara yfir frumvarpið og rýna það og ég hlakka til að sjá hver niðurstaðan verður úr því. Það er alveg rétt eins og hv. þm. Víðir Reynisson sagði hér áðan: Við erum öll almannavarnir. Ég hafði það náttúrlega sem mottó í Covid að hlýða Víði, þótt það hafi aðeins breyst eftir að við komum báðir inn á þing og ég sé ekki alveg eins auðfús til þess. Í þessu máli er ég hins vegar alveg tilbúinn til að hlusta vel á hvað hv. þingmaður hefur að segja.