157. löggjafarþing — 38. fundur,  25. nóv. 2025.

almannavarnir.

287. mál
[18:26]
Horfa

Víðir Reynisson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir hans ræðu og þessar vangaveltur, sem ég tek undir. Það eru nokkrar greinar í frumvarpinu sem gætu tengst því sem hann er að tala um og ég held að það sé full ástæða til þess að nefndin hugsi þetta og skoði þetta þegar frumvarpið kemur inn til hennar. Ég yrði ekki hissa ef einhverjir umsagnaraðilar myndu einmitt fara aðeins inn á þessar brautir. Þetta var örlítið nefnt þegar frumvarpið var í samráðsgátt og þetta er mál sem hefur komið upp aftur og aftur. Hv. þingmaður nefndi Holuhraun sem dæmi og svo urðu auðvitað umbrotin í Fagradalsfjalli, sem varð að einum stærsta ferðamannastað á landinu. Þá einmitt stóðu björgunarsveitir í löggæslu- og öryggisverkefnum þar svo mánuðum skipti.

Mig langar hins vegar að fara aðeins í annan þátt í frumvarpinu og leita um leið í reynslubanka hv. þingmanns sem fyrrverandi yfirlögregluþjóns á Norðurlandi vestra. Við höfum aðeins verið að velta fyrir okkur aðgerðastjórnum og hlutverki þeirra og mikilvægi þeirra í að stjórna aðgerðum á sínum heimasvæðum. Mig langaði aðeins að fá að heyra í hv. þingmanni um það hversu mikilvægt hann telur það stjórnstig vera í kerfinu og hvernig hann sér þetta út frá sinni reynslu af samstarfinu við samhæfingarstöðina, sem er á landsvísu, hvernig þetta tengist og spilar saman. Af því að ég veit að hv. þingmaður hefur reynslu á þessu sviði, bæði úr óveðrum og öðru slíku sem upp hefur komið í hans gamla lögregluumdæmi.