157. löggjafarþing — 38. fundur,  25. nóv. 2025.

almannavarnir.

287. mál
[18:32]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Stutta svarið er kannski: Nei, ég er ekki með orðalagið nákvæmlega á hreinu, hvernig ég myndi vilja sjá þessa grein. Ábending mín, í andsvari við hæstv. dómsmálaráðherra, fólst einfaldlega í því að benda á að það þurfi að mínu viti að skerpa á þessari grein. Og hvað er ég að hugsa þar? Jú, ég er að hugsa um það að í almannavarnaástandi er gríðarlega mikilvægt að miðla upplýsingum til íbúa sem eru á svæðinu og til almennings almennt. Þar eru fjölmiðlar náttúrlega í lykilhlutverki. Aðgerðastjórn, almannavarnanefndir, hefur í einhverjum tilfellum verið að senda skilaboð á Facebook um stöðuna og treyst á að það yrði tekið upp af fjölmiðlum en ég held að það væri skoðunarinnar virði að við myndum reyna að ramma svolítið inn hvert hlutverk fjölmiðla er í almannavarnaástandi. Við erum með miðil sem við eigum, sem heitir Ríkisútvarpið, og mér finnst að við þurfum bara að setja það inn með mjög afgerandi hætti í þetta frumvarp hverjar skyldur Ríkisútvarpsins eru komi til almannavarnaástands; hverjar skyldurnar eru, hvert hlutverk þess er og hvernig það tengist hvort sem er aðgerðastjórnstöð eða samhæfingarmiðstöð, hvað sem það verður, þannig að þetta sé algerlega ljóst. Af því að hv. þingmaður talaði hér um að RÚV hefði einhvern tímann lent upp á kant við almannavarnir þá gæti það kannski orðið til þess að svoleiðis gerist ekki aftur; ekki ef við erum búin að ramma það nákvæmlega inn í lögum hvert hlutverk almannavarna er gagnvart miðlinum og öfugt.