157. löggjafarþing — 38. fundur,  25. nóv. 2025.

almannavarnir.

287. mál
[19:00]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn sem mér finnst bara mjög góð. Þetta er mikilvægt og eitthvað sem þarf að rýna vel. Það kann vel að vera að það sé ástæða til að taka upp einhver ákvæði í lögreglulögunum hvað þetta varðar. Hér má líka læra af reynslunni, að ytri ásýnd til að mynda þessarar takmörkunar var að hluta til þannig að þarna væri lögreglan farin að hlífa fólki á viðkvæmum stundum í sínu lífi, að koma í veg fyrir að þar væru fréttamenn, ljósmyndarar og aðrir sem væru að taka myndir, til að mynda af þessum stórviðburði, rýmingu bæjarins. Það hefur verið bent á að það vanti í raun og veru myndir af því. Í öllu svona skiptir auðvitað máli að hver gæti að sínu og það sé ekki lögreglunnar að sinna einhvers konar ritstjórnarhlutverki eða að halda þessum hlífiskildi yfir fólki sem á um sárt að binda heldur fjölmiðlanna sjálfra að rækja sitt hlutverk þannig að sómi sé að. Ég treysti þeim ágætlega til þess að gera það. Ég nefndi í fyrri ræðu minni að fjölmiðlun sjálf sé hluti af þessu almannavarnaviðbragði og skiptir því mjög miklu máli. Ég held að það sé fyllilega hægt að sníða orðalag sem gengur eitthvað lengra en þetta. Þetta gengur mjög skammt, að leitast við að tryggja, það þýðir í raun og veru nánast ekki neitt. Það þarf að setja einhver viðmið sem við löggjafinn eigum að ákveða og viðbragðsaðilar eiga að fara eftir og auðvitað þannig að öryggi allra sé tryggt, og það valdi til að mynda ekki sérstökum vandræðum eða trufli annað viðbragð að fjölmiðlamenn séu kannski starfandi á vettvangi. Ég held að það sé fyllilega hægt að mæta þessu öllu.