almannavarnir.
Virðulegur forseti. Við ræðum hér í dag eitt af mikilvægari málum þessa þingvetrar, ný heildarlög um almannavarnir, lög sem eiga að leysa af hólmi eldri lagaramma frá árinu 2008, sem eru lög sem hafa sannarlega þjónað okkur vel, en reynsla síðustu ára hefur sýnt að þau duga kannski ekki alltaf til. Við höfum upplifað, eins og fram hefur komið hér í umræðunni í dag, jarðhræringar, eldgos, skriðuföll, snjóflóð, umfangsmiklar netárásir og stórslys, svo ekki sé talað um eitt stykki heimsfaraldur, á aðeins örfáum árum. Allt er þetta reynsla og við höfum svo sannarlega lært af þessum atburðum að íslenskt samfélag getur brugðist hratt og vel við. En við höfum líka lært að kerfið okkar þarf kannski stundum skýrari ramma, sterkari stoðir og meiri áherslu á fyrirbyggjandi aðgerðir. Það dugar ekki að vera dugleg eftir á, við verðum líka að vera vel undirbúin áður en áföllin dynja yfir og sofna ekki á verðinum.
Við höfum auðvitað líka séð fólkið okkar í almannavörnum, lögreglu, björgunarsveitum, heilbrigðisstarfsfólkið okkar, sérfræðinga og sjálfboðaliða standa ótrauð í fremstu víglínu þegar á reynir. Þetta er fólkið sem sinnir hlutverki sínu af ómældri fagmennsku og hugrekki. En þetta sama fólk hefur líka rekið sig á ákveðna veikleika í kerfinu og það er á okkar ábyrgð að leiðrétta það. Þess vegna liggur frumvarpið fyrir í dag og það er afrakstur að mér skilst tveggja ára vinnu og umfangsmikils samráðs og greiningar í dómsmálaráðuneytinu og víðar. Þetta er frumvarp sem byggist á raunverulegri reynslu samfélags sem hefur lifað í nær stöðugu álagi undanfarin ár.
Forseti. Í stefnu stjórnvalda í almanna- og öryggismálum segir skýrt að endurskoða þurfi lögin. Það er einmitt það sem við erum að gera hér í dag. Tilefni frumvarpsins er því einfalt. Heimsmyndin hefur breyst og áhættuþættirnir hafa líka breyst. Krafa um áfallaþol hefur líklega aldrei verið brýnni. Við búum ekki lengur í sama heimi og árið 2008. Við sjáum að netógnum fjölgar, við sjáum loftslagsbreytingar sem ýta undir náttúruvá og hernaðar- og fjölþáttaógnir í Evrópu sem við hefðum líklega talið fjarstæðukenndar fyrir fáeinum árum og við sjáum samfélag sem er orðið háð rafmagni og neti á alla kanta, kerfi sem geta fallið hratt ef þau eru ekki vel varin. Frumvarpið skýrir skyldu ríkis, sveitarfélaga og viðbragðsaðila. Það leggur meiri áherslu á að draga úr áhættu áður en eitthvað gerist því það er að sjálfsögðu ódýrasta og mannúðlegasta öryggisráðstöfunin sem völ er á.
Hæstv. forseti. Frumvarpið er viðamikið og ég vil í þessu skyni nefna þrjú meginsjónarmið, í fyrsta lagi aukna áherslu á fyrirbyggjandi aðgerðir og ómissandi innviði. Í frumvarpinu er í fyrsta sinn lögfest skylda til að tilgreina ómissandi innviði og þá þjónustu og kerfi sem samfélagið má hreinlega ekki missa. Þetta er stórt og mikilvægt skref. Þetta eru rafmagns- og fjarskiptakerfin, heilbrigðisþjónustan, samgöngur, vatnsveitur og annað sem líf okkar hvílir hreinlega á. Þeir sem bera ábyrgð á þessum innviðum fá hér skýrari skyldur og skýrari kröfur um viðbúnað. Við þurfum auðvitað að vita hvað er mikilvægt og hver ber ábyrgð og hvernig tryggja á að þetta haldi, líka í áföllum. Það er jákvætt skref.
Í öðru lagi langar mig að nefna skýrari ábyrgð á hættustundu. Frumvarpið skerpir á stjórnskipulagi almannavarna. Það festir í lög hlutverk samráðshóps ráðuneytisstjóra og stofnar nýjan samráðshóp ríkislögreglustjóra sem verður auðvitað lykilaðili í að samhæfa aðgerðir. Frumvarpið bætir líka inn nýju almannavarnastigi eða þjóðarvá. Þar sem við lifum á tímum þar sem netárás eða stór farsótt eða hættuástand vegna eldgosa getur haft áhrif á allt samfélagið samtímis þá þurfum við stig sem endurspeglar þann raunveruleika. Kaflinn skýrir einnig betur hvernig stýra eigi aðgerðum vegna náttúruvár, netógna, heilbrigðisógna og jafnvel hernaðarlegra váa sem við vonum að komi aldrei til. Þetta eykur öryggi okkar og fyrirsjáanleika sem er af hinu góða.
Í þriðja lagi langar mig að nefna hér aðeins hugtakið endurreisn sem hefur verið svolítið í umræðunni hérna í dag. Það er þessi stóra spurning: Hvenær lýkur hlutverki almannavarna? Þetta er nýtt og mikilvægt hugtak og markar skýr mörk um það hvenær almannavarnahlutverki lýkur og endurreisnin eða viðreisnin getur hafist. Þetta er auðvitað í höndum viðeigandi sveitarfélaga og samstarfsaðila. Við höfum auðvitað séð það í hræringunum t.d. á Reykjanesskaga hversu mikilvægt er að hafa skýra verkaskiptingu og að þetta sé allt saman á hreinu. Við erum auðvitað með þjónustumiðstöðvar sem og tímabundin úrræði sem þurfa skýran endapunkt, skýra yfirtöku og skýrt ferli. Þetta eykur gegnsæi og traust og kemur kannski í veg fyrir gremju og óþol í óvissum heimi, bæði gagnvart stjórnvöldum og fyrir íbúa sem eru að koma úr mjög erfiðum aðstæðum.
Forseti. Það er rétt að undirstrika að þetta frumvarp gerir vissulega ráð fyrir takmörkunum á ákveðnum réttindum; eignarrétti, atvinnufrelsi og alls konar frelsi einstaklinga á hættustundu. En þetta eru takmarkanir sem byggjast á stjórnarskrárvarinni frumkvæðisskyldu ríkisins til að vernda líf og heilsu fólks. Þær eru skýrar, afmarkaðar og bundnar meðalhófi. Þær eru aðeins nýttar þegar almannahagsmunir krefjast þess. Það er mikilvægt og það er tryggt í þessu frumvarpi.
Það hefur reynt á almannavarnakerfið á síðustu árum og það skiptir miklu máli að við séum komin með frumvarp, sem ég hlakka til að takast á við í hv. allsherjar- og menntamálanefnd. Ég hugsa að það verði alls kyns sjónarmið sem munu koma fram í vinnu nefndarinnar og vænti þess að umsagnaraðilar komi með uppbyggilega gagnrýni, eigi hún við. Ég held að þetta sé eitt af þessum málum sem við ættum að reyna að sameinast um þverpólitískt. Ég held að þetta sé eitt af þessum málum sem við ættum að hífa upp fyrir einhverja flokkadrætti og annað og eiga hér bara heiðarlegt samtal um okkar áfallaþol og okkar þolmörk þegar kemur að almannavörnum.
Mig langar aðeins í lokin, forseti, að minnast á það að ég er þessa dagana að lesa bók, af því að ég er aðeins að reyna að lesa meira og hætta að hlusta, svona núvitundaræfing. Bókin heitir Þú sem ert á jörðu og er eftir Nínu Ólafsdóttur. Þetta er svona frekar kaldranaleg framtíðarskáldsaga um það sem gerist ef allt þrýtur, þ.e. eldsneyti, rafmagn og allt það sem við tökum sem sjálfsögðum hlut í dag. Ég er hálfnuð með bókina, á eftir að sjá hvernig hún endar en þetta er nógu kaldranalegur veruleiki, af því sem ég er búin að lesa, til að geta ímyndað sér hversu viðkvæm veröldin er. Ef eldsneyti er ekki lengur til staðar, ef rafmagn er ekki lengur til staðar, hvað gerum við? Hvernig lifum við af? Ég ætla nú ekki að skemma fyrir þeim sem hafa ekki lesið bókina en þetta er nú ekki framtíðarsýn sem mig þyrstir í.
Við höfum reynt á almannavarnakerfið á síðustu árum og mögulega á árunum 2019–2020 var þetta frekar svakalegt, við vorum hér með aurskriður og snjóflóð og heimsfaraldur og jarðhræringar allt í einni súpu og þetta varð í raun og veru kannski það óvenjulegt ástand að maður varð hálfdofinn inni í þessu kerfi og inni í þessu ástandi. Núna þegar tíminn hefur liðið aðeins og maður lítur til baka þá hugsar maður um hversu mikilvægt og dýrmætt var að hafa þessar stoðir sem við áttum í almannavörnum, í lögreglunni okkar, hjá björgunarsveitunum og þeim sjálfboðaliðum sem stigu upp. Þetta eru ofboðslega dýrmætar auðlindir sem við eigum sem þjóð. Við kunnum að standa saman í vá en það sem hefur svolítið skort á hjá okkur er að ná kannski að vera með plan og fyrirsjáanleika til lengri tíma, setja plön og stefnu sem er skýr og langtímastefnumótun til kannski 10–20 ára. Við erum svolítið í viðbragðinu, við kunnum það, en ég held að það sé ágætt með þessu frumvarpi að leyfa okkur að hugsa um allt hið mögulega og ómögulega og vera hreinlega bara viðbúin vegna þess að ég held að það sé til lengri tíma mikill sparnaður fólginn í því.
Það eru auðvitað viðvörunarmerki á lofti vegna þess að heimurinn er að breytast. Við þurfum að hlusta á þessi viðvörunarmerki. Það er alveg mjög mannleg tilfinning að langa bara að loka augunum fyrir því og vona það besta en ég held að það sé ágætt að vera með augun svolítið opin og átta okkur á þeim merkjum sem eru á lofti í alþjóðasamfélaginu og í náttúrunni og sérstaklega þegar kemur að loftslagsmálunum. Vera viðbúin. Þess vegna þurfum við skýrari lagaumgjörð, meiri fyrirbyggjandi vinnu og skýra ábyrgðarkeðju þegar allt kemur til alls vegna þess að við megum ekki sofna á verðinum. Þetta frumvarp er svar við því. Þetta er ákveðin nútímavæðing á kerfi sem hefur þjónað okkur vel. Mér finnst frumvarpið skýrt og faglegt og byggjast á bestu þekkingu sem til er og umfram allt er þetta frumvarp sem styrkir áfallaþol íslensks samfélags og það gerir okkur betur í stakk búin til að verja fólk, vernda innviði og byggja upp hraðar þegar á reynir. Ég hlakka til frekari umræðu um þetta mikilvæga mál og þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir að koma með það hér í þingið í dag og ég hlakka til að takast á við málið í hv. allsherjar- og menntamálanefnd.