157. löggjafarþing — 38. fundur,  25. nóv. 2025.

almannavarnir.

287. mál
[19:52]
Horfa

Víðir Reynisson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég ætla ekki að lengja þessa umræðu mjög mikið, hún er búin að vera mjög góð og við erum búin að ná að fara ansi vel yfir þetta miðað við að við erum enn þá í 1. umræðu um þetta. Mig langar þó kannski að koma inn á þetta norræna samstarf sem hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir nefndi hérna áðan. Samkvæmt minni þekkingu á þessu er það þannig að við erum kannski með þetta norræna samstarf á þremur stigum, má segja. Það er auðvitað ráðherrasamstarfið, svo samstarfið á vettvangi þingmanna í gegnum Norðurlandaráð og síðan er þetta stofnanasamstarf og það er kannski það samstarf sem ég þekki hvað best í þessu. Það er mjög mikið samstarf á milli stofnananna sem fara með almannavarnamál á Norðurlöndum, bæði þegar kemur að skipulagsmálum, forvarnamálum og síðan líka þegar um er að ræða aðgerðir, t.d. að lána búnað á milli og færa sérfræðiþekkingu á milli ef nauðsyn krefur.

Til að skerpa enn frekar á þessu samstarfi ákváðum við sem þá gegndum forstöðumannahlutverkum í þessu samstarfi að setja á laggirnar það sem við kölluðum norræna skrifstofu almannavarna, sem er í sjálfu sér bara svona í skýinu. Þarna eru starfsmenn þessara stofnana, þetta var ekkert nýtt og það var ekki ráðið neitt nýtt fólk í neitt. Starfsfólk á þessum stofnunum hafði bara það hlutverk að sinna þessu norræna samstarfi með skýrum hætti. Þetta var líka til þess gert að þeir fundir þar sem þessir aðilar komu saman yrðu markvissari og að það væri búið að vinna málin á milli funda. Það sem hefur þó alltaf vafist fyrir mér — og ég verð bara að játa að minni mitt bregst aðeins í þessu en þegar við vorum í Covid átti ég fund með þingmanninum. Af því að ég hafði gagnrýnt norræna samstarfið átti ég fund með hópi þingmanna á netinu, að sjálfsögðu, þar sem við fjölluðum um þetta samstarf af því að norræna samstarfið hikstaði aðeins á Covid-tímanum. Okkur vantaði aðstoð á milli og það hikstaði aðeins. Því er spurning mín til hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur í þessu kannski: Hvernig getum við tengt betur þingmannasamstarfið, ráðherrasamstarfið og síðan stofnanasamstarfið (Forseti hringir.) í þessu þannig að við búum til eitt kerfi? Við erum með norrænan björgunarsamning sem er kallaður Nordred (Forseti hringir.) en hvernig tengjum við þetta betur saman til að nýta kraftana vel? (Forseti hringir.) — Afsakið, frú forseti.