kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og verð nú að viðurkenna að betur færi á því að það stæði í greinargerðinni hversu oft þetta mál hefði verið lagt fram. Ég sé að vísað er í síðasta þing en þau hafa verið nokkur; ég þyrfti bara að fara inn á vefsíðu Alþingis til að kanna það. Það skal líka alveg viðurkennast að greinargerðin hefur kannski ekki verið mikið uppfærð frá því að ég lagði málið fyrst fram en ég minnist þess reyndar ekki að við höfum gert neinar breytingar á þessum lögum síðan málið kom fram. Eins og ég lýsti í framsöguræðu minni erum við að fara að greiða atkvæði um breytingu á morgun en sú sem hér stendur hafði alltaf í hyggju að láta þetta mál fylgja frekari breytingum á lögunum. Ég aðhyllist það að gera þetta alveg frjálst. Ég sé ekki þörf fyrir að takmarka þetta mikið en er þó með þann fyrirvara á að það geti verið einhver reglugerðarheimild svo að ráðherra geti gert það. Eins og ég segi, ég held að það séu örfáir staðir þar sem mögulega þyrfti að banna slíkt, annars sé þetta bara með leyfi þeirra sem eiga landið. Ég held að það sé ágætt að þeir sem eiga landið séu þá líka með reglur um það hvort og hvar mætti merkja þannig að almennt aðhyllist ég að það sé lítil opinber íhlutun þegar að þessu kemur. En þetta er aðeins mismunandi á Norðurlöndunum og nú þori ég ekki að segja til um það hvort það hafi breyst eitthvað frá því að ég lagði þetta fyrst fram. Það færi þá kannski ágætlega á því að nefndin myndi kalla eftir upplýsingum um það frá upplýsingaþjónustunni sem upphaflega vann fyrir mig þessa greiningu á því hvernig þetta væri á hinum Norðurlöndunum.