kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir andsvarið og vangavelturnar. Ég held að það sé algerlega kórrétt að þegar kemur að þessum þingmannamálum og þegar kemur að okkar vinnu hér sem löggjafarvalds eigum við að geta leitað til fagráðuneytanna með að fá upplýsingar um hvernig löggjöfin samræmist öðrum verkefnum eða öðrum lögum sem verið er að fara að setja eða hvort það séu einhver áform um slíkt, og fá álit sérfræðinga á því sem við erum að gera vegna þess að við eigum auðvitað alltaf að vanda okkar vinnu þegar kemur að gerð laga og taka tillit til þeirra sjónarmiða sem þar eru undir. Auðvitað hefur nefndasvið Alþingis líka nýst okkur mjög vel í þeim efnum að tryggja að þegar við erum hér að fjalla um mál séu þau vönduð, að við séum að passa upp á það að við séum að fylgja öllum þessum reglum sem þingsköpin kveða á um og tryggja hér gæði lagasetningar. Það er eitthvað sem hvílir á okkur öllum og það sem við skrifum undir þegar við skrifum undir okkar drengskaparheit, við ákveðum að við ætlum að fylgja okkar sannfæringu og vanda okkur. Við erum hér kjörin til að gera það.
Varðandi málið almennt held ég einmitt að það verði nákvæmlega þannig, við fáum umsagnir og við tökum þær til skoðunar. Ég hygg nú að ég taki áskorun hv. þingmanns um að drekka jafnvel kaffibolla eða tvo og ræða um þetta mál í kjölfarið vegna þess að hv. þingmaður er auðvitað ekki í nefndinni en ég mun líka leyfa hv. þingmanni að fylgjast með framvindu málsins þar.