157. löggjafarþing — 38. fundur,  25. nóv. 2025.

kirkjugarðar, greftrun og líkbrennsla.

57. mál
[20:46]
Horfa

Pétur Björgvin Sveinsson (V):

Frú forseti. Ég ætla bara að þakka hv. þingmanni, eins og margir hafa gert hér áður, fyrir að hætta ekki með þetta mál. Mér finnst það mjög mikilvægt að við séum ekki að skipta okkur of mikið af því hvað gerist þegar fólk yfirgefur þessa jarðvist. Ég fagna því einnig að það leystist svolítið úr þessari flækju með breytingartillöguna, hvernig við stöndum hér í dag að ræða þetta mál. Það er kannski spurning að fara að stofna einhvern frelsishóp þingmanna hér á þinginu. Hv. þingmaður hefur áður lagt fram mál tengt dauðanum og það er mikilvægt að við þorum að ræða dauðann og hvernig við höndlum það að yfirgefa þessa jarðvist. Þetta er viðkvæmt mál fyrir marga, ég skil það mjög vel, en þetta er eitthvað sem við ættum algerlega að þora að taka umræðu um. Eins og hv. þingmaður nefndi þekkir maður mörg dæmi um að fólk sé að dreifa ösku þó að það sé bannað með lögum, hvort sem það eru Íslendingar eða erlendir ferðamenn sem koma hingað gagngert til að dreifa ösku í fallegri íslenskri náttúru. Pabbi minn lést fyrir fimm árum; hann var mikill hestamaður og mikill óbyggðamaður og hefði viljað láta dreifa ösku sinni uppi í óbyggðum Íslands. Það hefði verið gaman að geta gert það. Fjölskyldur vilja líka minnast ástvina sinna á fjölbreyttari hátt en gert var hér áður fyrr. Við búum kannski í mismunandi löndum og fjölskyldur eru dreifðari en þær voru áður þannig að það er mikilvægt að við búum til þetta frelsi fyrir fjölskyldur til að ráða því hvernig þær minnast ástvina sinna. Mér finnst það einnig mjög skemmtileg og falleg pæling að á Þingvöllum verði t.d. gerðir einhvers konar minningarlundir þar sem fólk getur komið og heiðrað fjölskyldu eða ástvini, í því fallega umhverfi sem þar er, og það eru ófáir staðir á landinu þar sem slíkt gæti átt einstaklega vel við. Ég sat hér í stólnum mínum áðan og velti því fyrir mér hvað ég myndi vilja gera; mig langar að vera tré, kannski í alþingisgarðinum eða hver veit.

Mér finnst þetta mjög gott mál, algjört frelsismál, og það rímar rosalega vel við ákveðinn kjarna innra með mér. Ég vona virkilega að nefndin fjalli vel um þetta mál og það komi hér til 2. umræðu. Sem nýr þingmaður og starfsmaður þings finnst mér að við ættum að skoða þingsköpin og skoða hvernig almennt er farið með þingmannamál. Að það sé regla og hefð að bara eitt mál fái kannski að fljóta með í þinglok; mér finnst bara að við hljótum að hafa pláss fyrir aðeins fleiri. Það er rosalega mikið af góðum málum sem eru að koma frá hv. þingmönnum, bæði í meiri hluta og minni hluta.

Varðandi það hvort við eigum að setja frekari reglur um þetta mál eða ekki þá er ég sammála hv. þingmanni um að þetta eigi bara að vera eins opið og mögulegt er og ef við rekum okkur á einhverja veggi þá hafi ráðherra einhverja heimild til að bregðast við því. En að vera með of mikla forræðishyggju frá byrjun, það finnst mér í raun flækja málið óþarflega. Ég styð það einmitt að reyna að halda þessu opnu en hafa einhverja varnagla inni í málinu til þess að ráðherra geti komið með einhverja reglugerð eða eitthvað álíka til að bregðast við. Ég held að það sé bara komið sem mig langaði að segja. Ég vona að þetta verði í síðasta sinn sem hv. þingmaður þarf að leggja þetta mál fram svo að hún geti farið að snúa sér að öðrum málum en dauðanum en annars þakka ég bara kærlega fyrir mig.