fæðuöryggi og innlend matvælaframleiðsla.
Ég þakka hv. þm. Víði Reynissyni fyrir andsvarið. Ég er nú bara þannig gerð að ég reyni að gera allt á einu bretti og það er kannski þess vegna sem þetta er allt lagt fram í einni tillögu, þ.e. að fæðuöryggi eigi að vera hluti þjóðaröryggis og það þurfi að gera heildstæða landsáætlun hvað það varðar, hún er ekki til. Hún er ekki til en ég held að það séu allir sammála um að hún þurfi að vera til. Ég veit að það hafa verið gerðar alls kyns skýrslur og það er verið að kynna nýjar skýrslur á á fimmtudaginn, skilst mér, sem tikka inn í þetta samtal. En ég er alveg tilbúin að skoða það að klippa þetta í sundur, að setja fram eina tillögu um fæðuöryggi og síðan aðra tillögu um að efla innlenda matvælaframleiðslu. Ég held að það sé bara mjög góður punktur og ég tek þetta bara með mér heim eftir þessa umræðu í dag. En varðandi innlendu matvælaframleiðsluna og að klippa þetta tvennt í sundur; myndi hv. þingmaður segja að fæðuöryggishlutinn ætti að fara til umfjöllunar í allsherjarnefnd eða atvinnuveganefnd? Ég er ekki viss. Kannski báðum, en það er ekki hægt.