157. löggjafarþing — 38. fundur,  25. nóv. 2025.

fæðuöryggi og innlend matvælaframleiðsla.

67. mál
[21:17]
Horfa

Pétur Björgvin Sveinsson (V) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir framsöguna á þessu máli og ýmislegt annað sem ég get alveg verið bara nokkuð sammála. Mér finnst bara mjög spennandi að skoða t.d. styrkingu á Beint frá býli og Beint frá bónda. Það væri gaman að heyra kannski örlítið meira frá hv. þingmanni um það og einnig hvers konar landbúnað hún hugsar sér að hún vilji sjá fyrir sér hér á landi. Það er helst það sem ég vil skoða í mínu fyrra andsvari. Við vitum að þessi stóri verksmiðjubúskapur hefur rutt sér til rúms víðast hvar í kringum okkur og það er ekkert mikið eftir af þessum bónda sem við fáum upp í höfuðið þegar við hugsum um landbúnað þótt það sé ótrúlega gaman að keyra um íslenskar sveitir og sjá býlin í kringum landið. Mig langaði bara aðeins að heyra meira frá hv. þingmanni um það.