fæðuöryggi og innlend matvælaframleiðsla.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ekki mikið eftir af hv. bónda, heyrði ég rétt? (Gripið fram í: Nei, kannski ekki mikið … )Þetta er nákvæmlega það sem ég var að benda á áðan, orðræðan um bændasamfélagið og bændur og að það sé sagt hér að ekki sé mikið eftir af bónda — mig langar bara að bjóða hv. þingmanni og sýna honum jafnvel sveitir og hvernig bændabýlin líta út vegna þess að það er hellingsbúskapur hér um allt land; sauðfjárrækt, nautgriparækt, svínakjötsrækt, garðyrkja, alifuglarækt, bara nefndu það. Það er alls kyns búskapur stundaður. Jú, sauðfjárbúum hefur fækkað mjög, það er alveg rétt. En að segja að það sé ekki mikið eftir af bónda finnst mér ekki orðræða sem mér finnst hæfa þessum ræðustóli vegna þess að það er mjög mikið af bændum hér úti í samfélaginu sem eru vonandi að hlusta og mér finnst ekki við hæfi að svona sé sagt. Það er hellingur af bændum hér úti í samfélaginu sem á að bera virðingu fyrir og fyrir þeirra störfum. Það gleður mig hins vegar að heyra að hv. þingmaður er sammála ýmsu sem hann les í þessari þingsályktunartillögu. Mér þykir vænt um að heyra það þannig að ég vonast kannski til þess að hann styðji að einhverju leyti við þetta framtak og ég hlakka til að heyra seinna andsvar.