fæðuöryggi og innlend matvælaframleiðsla.
Virðulegi forseti. Afsakið þetta. Ég held að ég verði að leiðrétta smá misskilning, ég beindi þessu kannski meira að þessum minni bændum, orðið minna af þeim í Evrópu eða í löndunum í kringum okkur. Mig langaði líka að vekja athygli hv. þingmanns á því að þegar ég var ungur drengur átti fjölskylda mín sveitabýli hérna rétt fyrir utan borgarmörkin og vorum við með um 50 kindur og 20 hesta, vorum mikið að taka slátur og annað þannig að ég þekki sveitina ágætlega, var alltaf í sveit hjá ömmu minni á Borgarfirði eystra frá sex til sextán ára aldurs þannig að ég þekki og ber mikla virðingu fyrir bændastéttinni og ber af mér ásakanir um annað.
Í seinna andsvari langar mig að spyrja: Ef við myndum fara í aðildarviðræður við Evrópusambandið og við myndum fá undanþágur og styrki til norðurslóða, bændastéttin myndi fá styrki frá Evrópusambandinu til ræktunar, hvað myndi hv. þingmanni finnast um það?