fæðuöryggi og innlend matvælaframleiðsla.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Leiðrétting er móttekin og það er gott að heyra að hann þekkir til bændastéttarinnar og ber virðingu fyrir henni. Ég er dóttir bónda, bara svo það sé sagt, þó svo að foreldrar mínir hafi nú brugðið búi. Ég vil bara nefna það líka áður en ég fer inn í Evrópusambandsbixið sem hann vill tala um: Hér er náttúrlega nánast enginn verksmiðjubúskapur þannig að þetta er bara ósambærilegt.
En varðandi Evrópusambandið þá vil ég bara segja þetta: Ég tel hag Íslands borgið utan þess en ég verð líka að segja að allar, að því er mér virðist, aðgerðir þessarar ríkisstjórnar, þ.e. Viðreisnar sérstaklega, sem nú situr, m.a. frumvarpið um breytingu á búvörulögum sem hún setti inn í samráðsgátt í október, miða að því að laga íslenskan landbúnað að evrópsku regluverki, að Evrópusambandinu, og við það er ég ekki sátt. (Forseti hringir.)