157. löggjafarþing — 38. fundur,  25. nóv. 2025.

fæðuöryggi og innlend matvælaframleiðsla.

67. mál
[21:29]
Horfa

Flm. (Ingibjörg Davíðsdóttir) (M) (andsvar):

Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir seinna andsvar. Hann spyr út í eftirlitskerfið, einföldun á því, það verði gert skilvirkara og kostnaði við eftirlitið létt af greininni. Ég er að tala um að létta kostnaði af greininni. Við erum að gera kerfið miklu skilvirkara, eða við erum að miða að því, í orkuframleiðslu og svoleiðis. Við eigum að gera það sama hvað varðar landbúnaðinn. Þegar ég segi að það eigi að létta kostnaði af greininni þá er það misjafnt eftir því hvað er verið að tala um stórar einingar við framleiðslu. Fyrir t.d. minni sláturhús er rosalega dýrt að hafa t.d. dýralækna bara öllum stundum yfir öllu og mér finnst að það þurfi að taka tillit til stærðar framleiðslueininga. Ég er ekki að tala um að öllum kostnaði verði létt af greininni heldur ákveðnum kostnaði létt af greininni og komið til móts við minni framleiðendur sérstaklega.