157. löggjafarþing — 38. fundur,  25. nóv. 2025.

fæðuöryggi og innlend matvælaframleiðsla.

67. mál
[21:31]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Herra forseti. Aðeins örfá orð um þessa þingsályktunartillögu sem ég er svo lánsamur að fá að vera meðflutningsmaður á. Ég vil kannski byrja á að segja að hér er dæmi um þingsályktunartillögu og þingmál sem er kjarnyrt. Það er ekki alltaf mælt í fjölda blaðsíðna hversu miklu máli, herra forseti, málin skipta sem við erum að fjalla um. Hér hefur verið vandlega hugað að orðavali í hvívetna og kjarnyrt og þess vegna er þetta mjög efnismikil tillaga þó að hún sé ekki talin nema á u.þ.b. tveimur blaðsíðum. Mig langar aðeins að nefna, ekki síst í ljósi þeirra andsvara sem framsögumaður og flutningsmaður, hv. þm. Ingibjörg Davíðsdóttir, fékk hér til að svara að í greinargerðinni ber fyrst að nefna kafla — ég ætla nú ekki að lesa þetta allt upp, herra forseti, það er búið að fara ágætlega yfir þetta — þar sem fjallað er um meginmarkmið tillögunnar. Það er að horfa til framtíðar og stuðla að aukinni verðmætasköpun úr íslenskum afurðum með markvissum aðgerðum. Svo er hér á öðrum stað fjallað um að íslenskur landbúnaður hafi staðið höllum fæti um langa hríð, að honum hafi verið sótt en að sama skapi séu tækifæri og sóknarfæri víða.

Í þessu samhengi, herra forseti, þá eru þessir þættir sérlega áhugaverðir að mati þess sem hér stendur í ljósi nýútkominnar atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar en þar er landbúnaðar í engu getið. Landbúnaðar er í engu getið og það auðvitað sætir furðu. Það er rétt eins og hann sé ekki til þegar staðreyndin er sú að í íslenskum landbúnaði, með ruðningsáhrifum, þ.e. það sem oftast er kallað afleidd störf, eru sennilega fast að 10.000 störf. Það er ekkert lítið þegar við horfum á atvinnulífið á Íslandi og ekki síst atvinnulífið í dreifðum byggðum. Það má jafnvel fullyrða þegar þessi stærð er skoðuð að við séum að tala um stóriðju í dreifbýli. Þá þykir mér líka þessi tillaga tala vel inn í áherslur um verðmætasköpun hringinn í kringum landið. Tækifærin sem felast í aðgerðaáætluninni í þessari þingsályktunartillögu, verði þeim hrint í framkvæmd, eru gríðarleg til aukinnar verðmætasköpunar.

Einnig langar mig, herra forseti, að nefna aðeins líka það sem er hér fjallað um og hefur aðeins verið komið inn á hér í andsvörum, þ.e. þáttinn er varðar matvælaöryggi, að öryggi hvers ríkis felist m.a. í því að geta brauðfætt þjóð sína. Þetta er, herra forseti, augljóst öryggissjónarmið. Hér er gert ráð fyrir því til að mynda, þó að þess sé ekki getið í þessari tillögu, að í kringum árin 2050–2055 þá verði hér um 600.000 manns í mat daglega. Það þýðir á íslensku að við verðum annaðhvort efla íslenskan matvælaiðnað og tryggja aðgang að heilnæmri íslenskri fæðu eða stórauka innflutning með tilheyrandi gjaldeyrisútstreymi. Þessar tölur er vel hægt að bera undir Bændasamtökin. Þar liggja þessar tölur allar fyrir. Það er áhugavert að nefna þetta núna, ekki síst í ljósi þess að við vorum hér fyrr í dag að fjalla einmitt um öryggismál, þ.e. frumvarp dómsmálaráðherra til laga um almannavarnir. Eins er ágætt að hafa í huga, af því að tíminn líður hratt og við erum líka fljót að gleyma, að það er ekki lengra síðan en á haustdögum 2008 að íslenska þjóðin átti fullt í fangi, alveg fullt í fangi með að tryggja lyf til landsins og olíu til að mynda til landsins. Það gekk svo langt að það þurfti ríkisábyrgð fyrir íslenskt olíufélag til að geta flutt inn olíu til landsins. Það var á þeim tíma gífurlegt lán fyrir okkur Íslendinga að hér var í landinu öflugur landbúnaður sem gerði það að verkum að við þurftum minni gjaldeyri að nota til að flytja inn matvæli auk þess sem bændur — og það er eitt af því, herra forseti, sem mér þykir oft hafa gleymst í umræðunni — geymdu umtalsvert magn af olíu og voru þar af leiðandi líka öryggisventill hjá þjóðinni þegar kom að olíubirgðum. Mér finnst allt í lagi að halda því til haga því að það er með þann þátt er varðar bændastéttina eins og svo marga aðra að þetta mikilvæga hlutverk hefur tilhneigingu til að gleymast.

Einnig langar mig að nefna vegna skoðanaskipta sem áttu sér stað áðan milli hv. þm. Ingibjargar Davíðsdóttur og hv. þm. Péturs Björgvins Sveinssonar þar sem vikið var að því sem mátti skilja sem einhvers konar verksmiðjubúskap, að vissulega er það rétt að býli landsins hafa stækkað á undanförnum árum, ekki síst kannski í mjólkinni þar sem við, með lagabreytingu á sínum tíma, mig minnir að það hafi verið 2004, gerðum greininni kleift að vaxa og hagræða. En að það nálgist eitthvað sem á evrópskan mælikvarða flokkast undir verksmiðjubúskap er af og frá, algerlega af og frá. Það er ekkert til á Íslandi sem í alþjóðlegum skilningi yrði skilgreint sem verksmiðjubúskapur nema ef vera kynni fiskeldi, sem ég tel, og hygg að ég fari með rétt mál, að flokkist undir landbúnað þó að það sé oftast rætt í samhengi við aðrar atvinnugreinar, fiskveiðar og annað slíkt. En það er landbúnaður þannig að ég held að það sé hægt að hrekja það og beina því til föðurhúsanna, hér er ekki stundaður verksmiðjubúskapur þó að örfá bú á Íslandi hafi haft tækifæri vegna breytinga á lögum á sínum tíma til að stækka og hagræða og framleiða fyrir okkur vörur á hagstæðara verði heldur en á meðan við vorum þannig tækjum búin og í þannig lagaumhverfi að hér þurftu íslenskir bændur að heyja á tiltölulega litlum tækjum á litlum jörðum og gátu þar af leiðandi ekki stækkað. Sem betur fer er þetta ekki veruleiki íslensks landbúnaðar í dag.

Herra forseti. Ég hvet atvinnuveganefnd til að taka þessari þingsályktunartillögu vel og stuðla að því að ráðist verði í þær aðgerðir sem hér eru lagðar til. Ég tel að þessi þingsályktunartillaga, komist aðgerðaáætlun hennar til framkvæmda, verði þjóðinni til heilla, bæði hvað varðar heilnæmar matvörur og matvælaöryggi.