varamenn taka þingsæti.
Þann 25. nóvember barst bréf frá formanni þingflokks Viðreisnar um að Jón Gnarr gæti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Miðvikudaginn 26. nóvember tók því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður, Aðalsteinn Leifsson. Þann 28. nóvember barst einnig bréf frá formanni þingflokks Viðreisnar um að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir yrði fjarverandi á næstunni í opinberum erindum. Í gær tók því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista flokksins í Suðvesturkjördæmi, Karólína Helga Símonardóttir.
Aðalsteinn Leifsson og Karólína Helga Símonardóttir hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðin velkomin til starfa að nýju.