157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

forsendur fjárlaga.

[13:38]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vil taka undir að það er mikilvægt að gögn sem snúa að fjárlögum berist tímanlega til þingsins. Þegar lög um opinber fjármál voru samþykkt á sínum tíma var sá siður að bandormurinn var lagður fram á sama tíma og fjárlögin en svo í gegnum árin, á síðustu árum, í tíð síðustu ríkisstjórnar sérstaklega, hafa bandormarnir færst aftar og aftar sem setur þingið í þrengri stöðu varðandi það að vinna málin. Þingflokksformenn sem hafa komið upp hafa sömu gögn og ég hef undir höndum; það er nánast orðin regla frekar en undantekning að við séum að vinna þetta samhliða. Ég tel að þetta sé eitthvað sem við ættum að bæta fyrir næstu ár en mikilvægt er að halda því til haga að hér er ekkert óvenjulegt á ferð. Þetta er nánast orðin reglan hér í fjárlögum á síðustu árum.

Ég vil hrósa nefndunum sem eru að vinna bæði með fjárlögin og bandormana, það er verið að fara að afgreiða þessa bandorma núna út úr nefndum, það hefur verið góður vinnuandi í öllum nefndum og vinnan hefur gengið vel. Ég reikna með góðri og líflegri umræðu hér í dag.