markmið um hallalaus fjárlög 2027.
Forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir aðra ágæta spurningu. Það er gert ráð fyrir að hagræðingaraðgerðir skili 13 milljörðum á næsta ári. Þær eru auðvitað eðli málsins samkvæmt dreifðar mjög víða um ráðuneytin en koma þar fram undir hverjum málaflokki. Eins og hv. þingmaður veit er beitt þeirri nálgun að reyna frekar að einangra ákveðin verkefni og ráðast í ákveðnar fyrir fram skilgreindar hagræðingaraðgerðir frekar en flatan niðurskurð og þær aðgerðir er þess vegna að finna undir málefnasviðum hvers ráðuneytis fyrir sig.
Mig langar til að segja eitt: Það er auðvitað athyglisvert að setja breytinguna sem fjárlaganefnd leggur til á fjárlagafrumvarpinu fram sem tvöföldun á halla. Ég vil þó í þessu samhengi benda á að þessi tala, sem er af stærðargráðunni 19 milljarðar, er dvergvaxin samanborið við þá breytingu sem fjárlaganefnd lagði til við síðustu fjárlög, sem, ef ég man rétt, var upp á 70 milljarða. Svo ég segi: Vel gert, fjárlaganefnd.