málefni útlendinga.
Virðulegur forseti. Nú er orðið ljóst að útlendingafrumvörp fara ekki hér í gegn fyrir áramót, sem er miður. Við hefðum stutt það í Miðflokki en málaflokkurinn fer ekki frá okkur og það er af ýmsu að taka. Ég hef talað um að þessi nýi dvalarleyfisflokkur sem kemur til með afturköllun alþjóðlegrar verndar geti orðið mikill vandræðadvalarleyfisflokkur. Nú heyri ég umræðu um það innan kerfisins að þessi hópur geti ratað inn í brottfararstöðina svokölluðu, sem er líka vandræðaúrræði. Það hefur ekki farið mikið fyrir því í íslenskum fjölmiðlum, maður hefur ekki heyrt mikla umræðu um það, en víða annars staðar hefur svona brottfararstöð alls ekki reynst sérlega skilvirkt úrræði þó að maður sé enn þá að skoða þetta. Það getur vel verið að tilefni sé til að ætla að þetta leysi eitthvað, en þetta skapar fullt af vandamálum um leið og það leysir kannski ákveðin vandamál, hvort sem vísað er til þess að í Danmörku hafi menn lent í miklum öryggisvandamálum á svona stað — þetta eru hópar sem hafa oft engu að tapa — og jafnvel að danska ríkið sé hreinlega að kaupa upp land í kringum svona stöðvar vegna þess að þetta verður oft mjög flókið og menn daga þarna miklu lengur uppi en áætlað er. Því er það heldur ekki víst að það frumvarp muni leysa margt, sem er nú annað frumvarp sem við sjáum ekki að fari hér í gegn fyrir jól, en þó er sannarlega vert að skoða þetta. Er ekki tímabært, og það er kannski það sem maður vill fá frá hæstv. ráðherra, að við förum mun frekar að ræða það að Ísland hafi frumkvæði að því, rétt eins og er til umræðu innan Evrópusambandsins og meðal þjóða þar alla vega, að leysa málin með svokölluðum öruggum þriðju ríkjum, að við leitum til erlendra ríkja til að taka við þeim hópum sem við teljum okkur ekki stætt á að hafa hér í stað þess að búa til ný og ný úrræði hér sem geta sannarlega bara undið upp á sig og orðið til vandræða frekar en að leysa málið? Hvort við þurfum ekki að fara að skoða það af alvöru að senda menn úr landi, t.d. með samningi við þriðju ríki og hafa frumkvæði að því sjálf, er það sem ég vil fá frá hæstv. ráðherra. Þar að auki nefni ég þessa tillögu um að hætta alveg í bili að taka við hælisleitendum. Ég veit að hæstv. ráðherra segir það ómögulegt þótt það sé að vísu ekki rétt, en a.m.k. að leita leiða (Forseti hringir.) til að losa okkur við þá sem ekki eiga erindi hingað.