157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

málefni útlendinga.

[14:04]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Frú forseti. Ég veit ekki hvort jólafríið hefst fyrr hjá Miðflokknum en öðrum stjórnmálaflokkum. Það er fullt af þingfundadögum eftir og ríkisstjórnin er algerlega á því að ætla að afgreiða þau frumvörp inni í allsherjarnefnd sem eru hjá mér um útlendingamál. Þar erum við með afturköllun alþjóðlegrar verndar í þeim tilvikum þar sem menn brjóta ítrekað eða alvarlega af sér, þar erum við með afnám 18 mánaða reglu. Það eru tíðindi ef Miðflokkurinn ætlar að kasta inn handklæðinu áður en þingið fer í jólafrí. Þessi frumvörp verða afgreidd. Við erum með brottfararstöð og það eru líka tíðindi að heyra það að Miðflokkurinn ætli sér ekki að styðja þær aðgerðir því að þær snúast um að koma því fólki úr landi sem hefur fengið neitun, sem hefur kært sig alla leið í gegnum kerfið, lýst því yfir að það ætli ekki að vera samstarfsfúst við yfirvöld um það. Til þess þurfum við þetta verkfæri og við erum sem stendur eina Schengen-ríkið sem ekki á slíkt úrræði. Það eru tíðindi ef Miðflokkurinn ætlar að lýsa því hér yfir að vilja ekki það verkfæri því að það er nauðsynlegt.

Ég er með fimm frumvörp á þingmálaskrá í vetur á sviði útlendingamála. Tíðindin hér eru kannski þau að ríkisstjórnin stendur saman í útlendingamálum. Ég hef upplifað þingsalinn fram til þessa með þeim hætti að þingið allt geti stutt aðgerðir okkar í útlendingamálum. Ég er með fimm frumvörp og er að nálgast málið heildstætt. Það er líka nýmæli. Hér eru til flokkar sem tala bara um alþjóðlega vernd og það eiga Miðflokkurinn og No Borders dálítið sameiginlegt, að tala bara um alþjóðlega vernd. Það er eiginlega spurningin sem ég spyr á móti: Hvað eiga Miðflokkurinn og No Borders sameiginlegt? Að tala bara um alþjóðlega vernd. Ég er að skoða dvalarleyfiskerfið. Ég er með fimm frumvörp um alþjóðlega vernd, um afturköllun hennar, um afnám 18 mánaða reglunnar, um brottfararstöð, um móttökumiðstöð og boða heildarendurskoðun á dvalarleyfum á Íslandi. Þetta eru stórar breytingar og markvissar. Þær ganga sannarlega ekki út á það að vera á móti útlendingum bara vegna þess að þeir eru útlendingar, (Forseti hringir.) heldur út á það að vera með skynsamlegar aðgerðir og kraftmiklar aðgerðir þegar þeirra er þörf.