hækkun skatta.
Forseti. Þetta lá allt fyrir þegar boðað var til kosninga en þið lofuðuð að hækka ekki skatta. Við vitum öll að það er hægt að hækka og lækka skatta og einhverjar breytingar geta verið sanngjarnar eða ósanngjarnar, en loforðið ykkar var að hækka þá ekki. Þetta eru nú svolítið skrýtin svör og í ofanálag bætist við að 11 milljarðar — það á að kenna fyrri ríkisstjórn um. Hér fór ríkisstjórn frá völdum af því að hún var óvinsæl, eða við getum haft okkar skoðanir á því af hverju fór sem fór, en það breytir því ekki að þið voruð kosin af því að þið ætluðuð ekki í sömu vegferð.
En ég á víst inni eina spurningu. Ég ætla að nýta tækifærið og benda hæstv. ráðherra á varðandi erfðafjárskattinn að þetta er mjög ósanngjarn skattur sem þau ætla að bæta á. Hann mun verða til hækkunar og hann mun leiða til flækjustigs og það kemur skýrt fram í umsögnum. Því spyr ég ráðherra: Er það sjálfsagt að yfirskattanefnd geti óskað eftir því að þið breytið lögum ef þeir tapa máli?
(Forseti (): Forseti minnir á að það ber ávallt að ávarpa forseta og aðra þingmenn eða ráðherra í þriðju persónu.)