hækkun skatta.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir seinni spurninguna sem var ekki næstum eins hnitmiðuð og sú fyrri, sem var mjög til eftirbreytni fyrir þingheim. (Gripið fram í.) Ég er ekki sammála þeirri framsetningu að segja „kenna um“. Mér finnst mjög skrýtið þegar ég stend í ræðustól Alþingis og segist sammála einhverju sem einhverjir sem skilgreina sig sem mína andstæðinga hafa einhvern tímann haldið fram, að þá sé ég að klína einhverri sök. Ég tek að sjálfsögðu, og þessi ríkisstjórn, sjálfstæða ákvörðun. Það hins vegar að við séum sammála einhverjum aðgerðum fyrri ríkisstjórnar ætti ekki að vera neitt annað en merki um ákveðið heilbrigði. Ég er mjög hissa á því að segja „fylgja sömu vegferð“. Það sem einkenndi stjórnartíð fyrri ríkisstjórnar var fyrst og fremst aðgerðaleysi og það má svo sannarlega segja að það hafi ekki einkennt þessa ríkisstjórn.
Varðandi erfðafjárskatt verð ég að viðurkenna að ég skil á hvaða vegferð þingmenn eru í að gagnrýna þessa breytingu en það er meginviðmið (Forseti hringir.) í erfðafjárálagningu á Íslandi að miða við markaðsverð. Það er ekkert ósanngjarnt við það.