157. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2025.

afgreiðsla frumvarpa um útlendingamál.

[14:15]
Horfa

Snorri Másson (M):

Virðulegi forseti. Ég vildi snöggvast hálfpartinn bera af mér sakir vegna orða hæstv. dómsmálaráðherra um að Miðflokkurinn styðji ekki afgreiðslu útlendingafrumvarpa hér á þessu þingi. Ég fæ þær upplýsingar frá forseta Alþingis að útlendingafrumvörp hæstv. ráðherra séu ekki á dagskrá. Nú velti ég því fyrir mér hvort það sé vegna þess að hæstv. dómsmálaráðherra er ekki inni í umræðunni við ríkisstjórnarborðið um hvaða mál beri að afgreiða eða hvort menn séu farnir að hafa einhverjar áhyggjur af fylginu eða öðru eins. En það er afar undarlegt að láta eins og það sé einhverjum öðrum að kenna eða á annars ábyrgð að hæstv. dómsmálaráðherra komi ekki málum í gegn fyrir jól. Það strandar ekki á Miðflokknum heldur einhverju allt öðru og það væri kannski ágætt að fá að vita hvað það er.