afgreiðsla frumvarpa um útlendingamál.
Frú forseti. Þetta var allsérstök innkoma hv. þingmanns og þingflokksformanns Samfylkingarinnar þegar hér er gefið í skyn að það sé ekki salur í samfélaginu fyrir því að við ræðum málin hér. Ég minni hv. þingmann á að þetta er málstofa, það er fyrst og fremst tilgangur staðarins að ræða málin hér. Varðandi það sem hér er til umræðu um hvaða mál skuli afgreiða fyrir þinghlé um jól þá voru þetta upplýsingarnar sem bárust, að þetta væru forgangsmálin. Við vorum að lesa þann lista. Ef það er vilji meiri hlutans að taka einhver önnur og brýnni mál, samanber útlendingamálin, og fleyta þeim framar á dagskrá, þá að sjálfsögðu mun Miðflokkurinn ekki þvælast fyrir því, enda veit hv. þingmaður sem og þjóðin öll að það að ætla að reyna að búa til einhverja grýlu úr því hvar Miðflokkurinn stendur í þeim málaflokki er umræða sem því miður, hv. þingmaður, er fyrir fram töpuð.